Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 64
niðurlagi Marjas ofaukið — og þá ekki síst vegna þess sem Helgi lætur ónefnt, þ.e. predikunar fóstrunnar — stöndum við uppi með endinn eins og hann er, og hljótum að túlka söguna alla í stað þess að vísa hluta hennar til föðurhúsanna. Eins og fyrr var nefnt eru í lokaþætti Marjas dregnar ákveðnar hliðstæður með bemskusögunni og sögu fullorðinsáranna. Auk þess sem þegar hefur verið talið, segir sögumaður t.d. að „dimmir og daprir skuggar" (145) hafi sótt að sál sinni og hún hafi „skolfið í næðingnum“ (145) er hann ræddi við fóstruna fullorðinn en sú lýsing er hliðstæð lýsingunni á líðan hans í bemsku er hann beið þess í baðstofunni að endanlega kæmist upp um hann. Kristján Karlsson, bendir á að niðurlag sögunnar sé „listrænn rammi“ hennar. Hann segir að það vitni um „mótsögn sem er fólgin í aðferð raunsæisstefnunnar“, sag- an eigi að vera hlutlæg en jafnframt dæmi- saga og höfundurinn en ekki lesandinn eigi að ráða útleggingunni. Kristján kemst að þeirri niðurstöðu að sagan fjalli um „einka- mál“ en útfærir þá túlkun sína ekki nánar.1' Ólafur Jónsson, sem er í ýmsu sammála Kristjáni, lítur hins vegar svo á að með niðurlaginu „missi höfundur . . . vald sitt á sögunni“ og þá einkum af málfarsástæðum. Hann segir m.a.: En þó svo sé litið til að niðurstaða sögunnar sé að öllu leyti einkamál sögumannsins, og eigi ekki að kenna öðrum eitt eða neitt, verður hún aðallega til að veikja tiltrú les- andans til hans og ómerkja að því skapi sjálfa þá reynslu sem var þó efni sögunnar. Af því að huglæg merking sögulokanna stendur ekki í neinu lífrænu, rökréttu sam- hengi við hlutlæga merkingu meginsög- unnar, sjálft yrkisefni hennar. Þegar hliðstæðumar sem dregnar eru með „sögunum“ tveimur í Marjas eru skoðaðar með hliðsjón af nafni sögunnar, vaknar sá grunur að nafnið vísi ekki aðeins til þess að mennimir standi andspænis gjörðum sínum og kenndum sem böm andspænis spilum eða „hrófatildri“ — en það orð er m.a. skýrt sem „spilaborg“ í fyrrnefndum Skýringum við Lestrarbók.14 Nafnið kann m.ö.o. að vera lykillinn að þeirri sögu sem aðeins er gefin í skyn. Eða liggur ekki beint við að ætla að af nafninu og „hjónaspilinu" sem lýst er í bemskusögunni, eigi lesandinn að draga þá ályktun að fuliorðinn hafi sögu- maðurkomið illa fram í öðru „hjónaspili“? Slíka túlkun styðja bölbænir Gríms yfir drengnum en líta má svo á að þær verði áhrínsorð. Svipaða sögu er að segja um skýringar sögumanns við bemskusöguna, sem sumar má túlka sem leiðarvísa til skiln- ings á „seinni“ æmmissi hans, t.d. þessi orð: Þetta marjasarkvöld var fagnaðarhátíð, sæll draumur sem mennina dreymir ekki nema örsjaldan á ævinni. (137, breytt letur hér) Þessi skilningur á Marjas breytir kannski ekki heildarniðurstöðum við túlkun sög- unnar. Hann leiðir hins vegar í ljós að saga fullorðinsáranna er í rökréttu samhengi við merkingu bemskusögunnar. Hann gefur einnig fyllri mynd af andstæðunum sem í sögunni birtast, (bam vs. fullorðinn, óaf- vitandi vs. vitandi vits, óreyndur vs. reynd- ur o.s.frv.), og sýnir að niðurlagið vitnar ekki aðeins um útleggingarþörf söguhöf- undar eða trúar- og siðferðishugmyndir, sem menn hafa verið mishrifnir af. Svo víðtæka skírskotun sem Marjas kann að hafa sem dæmisaga em það ótvírætt ásta- mál sem söguhöfundur setur í brennidepil, 62 TMM 1991:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.