Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 114
minn“ á plötu, heldur Ingibjörg Þorbergs (raun- ar líka á ensku). Frá Norðurlöndum barst ekki bara eitt og eitt lagáþessumárum uppúr 1950, heldurfjölmörg og sömuleiðis frá Frakklandi, Italíu og Þýska- landi. Upptalning á íslenskum dægurlagahöfundum fyrri tíma á bls. 12 er ansi tilviljanakennd og gerir höfundur lítið úr þeirri miklu grósku sem hér var í dægurlaga- og textagerð allt frá því snemma á fjórða áratugnum. Til fróðleiks má geta þess að fyrsta sigur- ganga tangósins var fyrir fyrra stríð, ekki á millistríðsárunum og þó hann hafi e.t.v. ekki borist hingað fyrr en eftir 1920. Sigurganga rúmbunnar hófst fyrir 1930. Mér kemur á óvart að höfundur skuli telja lagið „Singing the Blues“ til rokklaga því það er upphaflega úr kántrí-geiranum og varð ekki vinsælt erlendis sem rokklag. Vinsælasta út- gáfan var með Guy Mitchell, en hann flutti lagið með hljómsveit Ray Conniff en starfaði áður með sjálfum erkihertoga flatneskjunnar, Mitch Miller. Má kannski segja að Skapti og félagar hafi rænt laginu, snúið því upp á andskotann og gert það að rokklagi? Lagið „Water, Water“ var oft flutt í útvarpinu. Hafi það nokkurn tíma verið bannað (bls. 48) var það ekki fyrr en eftir margra mánaða vin- sældir. Mér er ekki kunnugt um sölu á fyrstu stóru dægurlagahljómplötum íslenskra tóna, en þær komu út 1960. Þessarar útgáfu hefði mátt geta á bls. 93 þar sem minnst er á fyrstu íslensku stóru plötumar. Einnig kom út stór vinsæl plata með Hauki Morthens um svipað leyti og Svavar Gests fór af stað með sína útgáfu. Á bls. 151 segir að uppvaxandi maóistar í Ósló hafi aðstoðað Megas við útgáfu á fyrstu plötu hans. Hvenær varð Steingn'mur Gunnars- son maóisti? Þetta er óttalegt bull. Mætti ekki einhvers staðar geta hljómsveit- arinnar Falcon frá Bíldudal? Fleiri mætti nefna sem ekki er getið, en einhverjir verða víst alltaf útundan í bók sem þessari. Á bls. 170 er talað um að stíll Ingibjargar Þorbergs sé ýkturog leikrænn. Þetta eru óþarfir fordómar. Höfundur hefur sjálfsagt ekkert hlustað á söng Ingibjargar eftir að hann varð fullorðinn og ætti því sem minnst um hana að segja og allra síst í beinu samhengi við bama- lagaplötu Megasar, en hann er einn af allra einlægustu aðdáendum söngkonunnar og er síst af öllu að forðast hennar stíl. Á bls. 185 fellur höfundur í þá freistni að gera lítið úr Gylfa Ægissyni. Sannleikurinn er hins vegar sá að Gylfi hefur fengið margar mjög góðar hugmyndir og alls ekkert færri eða ómerkilegri en margir þeir sem hrósað er í bók- inni. Spyrja má hvort höfundur sé ekki laus við ótta um álit lesenda fari hann að hrósa Gylfa. Lokaorð Fagna ber útgáfu þessarar bókar og er hún skyldulesning allra þeirra sem velta vöngum yfir íslenskri tónlistarsögu. Höfundur ryður grýttan veg og talsvert áræði hefur þurft til að leggja í þetta verkefni og þegar á heildina er litið hefur vel tekist til. Lítið er um beinar villur og þó síðari hluti bókarinnar sé nokkuð stagl- kenndur á köflum er hún yfirleitt mjög læsileg. Eins og fram hefur komið hér að framan má sums staðar sitthvað setja út á efnistök. Höfundi tekst þannig ekki að losa sig undan þjóðsögunni um að allt sem máli skiptir byrji eftir 1955. Hann getur þó huggað sig við það að hann er ekki einn um að falla í þessa gryfju, það virðast flestir rokkfræðingar erlendir hafa gert líka (þó ekki allir). Á síðustu síðum bókarinnar gætir óþarfa veraldarmæðu sem er í nokkurri and- stöðu við efnistök að öðru leyti. Næsta bók Gests mætti verða ítarlegt upp- flettirit um íslenska dægurtónlist (ekki bara rokk), eins konar útvíkkun á ágætum viðauka þessarar bókar og hlakka ég til að líta í það rit, ef af yrði. Trausti Jónsson 112 TMM 1991:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.