Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 8
hljómbotn í bókinni“ (317). Og niðurstaðan er hinu kvenlega heldur í óhag: Hetjuhugsjónin í Gerplu byggir á and- stæðuhugsun þar sem allt kvenlegt er bann- að, bælt, lokað úti. Og þá gerist það sem búast má við, því þrengra sem hringurinn er dreginn, því meira verður utan hans og því ógnvænlegra verður það — uns þeir sem byggja hringinn sjá sig tilneydda til að eyða því sem ógnar tilvist hans (318). 2 í túlkun Dagnýjar verður Gerpla fyrst og fremst persónusaga; persónumar — hetj- umar þrjár — rísa úr djúpinu og sýna sitt (nokkum veginn) einlita kyneðli. Um þetta má efast án málalenginga, eins og bæði Régis Boyer og Bergljót Kristjánsdóttir hafa raunar gert. Sagan, segir Bergljót, er [ . . . ] mósaísk að byggingu og ekki per- sónusaga öðru fremur. Miklu heldur er hún þjóðfélagsleg og heimspekileg frásögn af samlífi manna og lögmálunum sem það lýtur, — því er einstaklingnum ekki ætlað miklu meira rúm í frásögninni en hann hef- ur allajafna í veruleikanum utan hennar.'’ Þessi efasemd nægir vitanlega ekki ein og sér til að riðla túlkun Dagnýjar. En hún vísar veginn til þeirra spuminga sem leita þarf svara við. Freudísk túlkun á vanda samlífs- ins byggir á hefðbundinni og afmarkaðri hugmynd um einstaklinginn og þar af leið- andi krefst slík túlkun persónusögu í ein- hverri mynd. Ég held að sú nálgun sé vafasöm þegar best lætur, og einkar óheppi- leg til lesturs á texta með breidd Gerplu. Nóg um það. Setjum svo að Gerpla sé saga persóna með bælingarvandamál, og lítum á bælingartilgátuna, sem eins og allir vita er eitt af lykilatriðum kenningar Freuds. Hugmyndin er eiginlega sú, að sér- hvem vanda í lífinu megi rekja til hins kynferðislega bælda hlutskiptis. Markmið- ið er að skoða þá hugmynd, því þó ástin og óhugnaðurinn eigi sér ekki sýnileg takmörk í lífinu og í skáldskap, þá verður að taka kenningum um alríki þeirra með gagnrýnu hugarfari. Og hugmyndin um að maðurinn standi frekar í beinu sambandi við tilfinn- ingahita fmmbemskunnar en heiminn sjálf- an hefur viljað loða við bókmenntafræðina á okkar öld — jafnvel fastar en við skáld- skapinn. Bælingartilgátan byggir á einfaldri og öflugri hugmynd um manninn: maðurinn er dýr, en þarf ekki að vera vonlaus fyrir það, því hann getur annað hvort verið eðli- legt eða óeðlilegt, heilbrigt eða óheilbrigt dýr. Bælingin er tæki samfélagsins til að búa til bærilegt samlíf eðlilegra mann-dýra. Hún er einskonar neyðarúrræði og getur brugðið til beggja vona með árangurinn.6 Og ef hvatalífið fer úr böndunum, ef bæl- ingin verður of mikil, þannig að þrotlaus þráin skyggir ekki bara á viðkvæmt siðferð- ið, heldur kemur einnig í veg fyrir eðlilega úrvinnslu mannins á því sem bælt er, þá er hægt að lækna það. Þannig má aðgreina tvær hliðar á kenningu Freuds: þá fræði- legu, sem setur fram tiltekna hugmynd um manneðlið, og þá praktísku (,,þerapísku“), sem byggir á hinni fyrri og segir til um það, hvemig lækna má manninn, hvemig nálg- ast má „heilbrigt" jafnvægi dýrs og manns í einstaklingnum. En er þetta nothæft líkan að manneskju? Er maðurinn ekki bundinn af samfélaginu öllu, af valdaafstæðum, þekkingarstigi, 6 TMM 1992:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.