Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 42

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Side 42
grófum dráttum sammála um þróun í skáld- sagnagerð níunda áratugarins. Grein mín er sprottin af annarri sýn á þetta tímabil. II Hægt væri að brjóta heilann talsvert um það hversvegna módemisminn var ekki nema um áratug í fyrirrúmi íslenskrar sagnagerð- ar, þ.e.a.s. sem áberandi andófsafl. Kannski má teljast eðlilegt að um hafi hægst og menn reynt að átta sig á hvað breyst hefði með verkum eins og Astum samlyndra hjóna (1967), Leigjandanum (1969), Him- inbjargarsögu eða Skógardraumi (1969), Ópi bjöllunnar (1970), Lifandi vatninu — (1974) og Djúpinu (1974). Vera kann að höfundar þessara verka hafi á ýmsan hátt ofboðið íslensku lesþoli, ögrað því um of. Kerfið hafði ruglast, eins og segir í Önnu Guðbergs, og þótt það kynni að hafa snúist í „margbrotinn skáldskap“ fannst líklega mörgum óþarft að velta vöngum yfir því, vegna þess að hann hlyti að standa „fastur í hænuhaus lesandans.“3 Það er kannski ekki fyrr en á allra síðustu árum að ljóst hefur orðið hversu afdrifarík þessi umbrot voru fyrir íslenska sagnagerð. Meðal verka þeirra fjölmörgu skáldsagna- höfunda sem komið hafa fram á sjónarsvið- ið eftir blómaskeið módemismans er að mínu mati mest spunnið í skáldsögur sem bera merki skapandi endurmats á form- gerðarbyltingunni og vakandi vitundar um hana. Þá hef ég í huga verk eins og Tíma- þjófinn eftir Steinunni Sigurðardóttur (1986), Hringsól Álfrúnar Gunnlaugsdótt- ur (1987), Skuggabox Þórarins Eldjárns (1988), Eg heiti ísbjörg, ég er Ijón eftir Vigdísi Grímsdóttur (1989), Svefnhjól Gyrðis Elíassonar (1990), og Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur (1990), og er þá ekki allt talið. Ég er ekki að tala um „áhrif“ formbyltingarmanna á þessa síðast- töldu höfunda (sem auk eigin frumleika gætu allt eins hafa sótt örvun til erlendra bókmennta), heldur hafa þessir höfundar kannað það rými sem íslensku skáldsög- unni opnaðist á síðari hluta sjöunda áratug- arins. Með þessu er ég ekki að segja að nýir höfundar hafi verið einir um slíkt fmm- kvæði. Því það hefur verið spennandi að fylgjast með þróun formbyltingarhöfund- anna og sjá hvemig þeir hafa endurmetið jafnt sagnahefðina sem eigin byltingu. Af skáldsögum þessara höfunda frá síðastliðn- um áratug má nefna / sama klefa (1981), Hjartað býr enn íhelli sínum (1982), Frosk- manninn (1985), Grámosinn glóir (1986), Náttvíg (1989) og Gunnlaðar sögu (1987). III Bókmenntasaga samtímans er mótsagna- kennt fyrirbæri; söguleg fjarlægð er lítil, gildismat taumlausara en ella og því eðli- legt að skoðanir séu skiptar. Til að standast verður slíkt mat þó að byggjast á almennum einkennum sem hægt er að benda á og færa rök fyrir. Gísli Sigurðsson telur að í íslensk- um sagnaskáldskap frá 1980 til 1990 megi sjá tilfærslu „frá formi til frásagnar"4 og fagnar því að höfundar séu „aftur famir að segja lesendum sínum sögur“ (bls. 71). Hann samsinnir í þessu sambandi sjónar- miðum sem fram koma í grein Halldórs Guðmundssonar, sem talar um „blindgötu módemismans“ (án þess að ljóst sé hver hún er) og segir „afturhvarfið til frásagnar- innar [vera] eitt megineinkennið í íslensk- um bókmenntum síðasta áratugar."5 Þeir 40 TMM 1992:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.