Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 43

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 43
Halldór og Gísli nefna nokkra höfunda í greinum sínum en vilji lesandi fá að vita hvaða höfundar og verk séu beinlínis dæmi um „afturhvarf til frásagnar", þá simr hann uppi með afar fámennan flokk. Nánar verð- ur vikið að því síðar. Vera kann að „andstæða hefðar og mód- ernisma“ sé að leysast upp, eins og Halldór nefnir (bls. 52). Ýmsir erlendir fræðimenn hafa talið samhæfingu módemisma og hefðbundins raunsæis vera megineinkenni póstmódemisma, en aðrir telja hann felast í fjölhyggju og stefnuleysi.6 íslensk sagna- list hefur verið í mikilli deiglu nú um sinn og greinilegt að menn sjá þar votta fyrir ólíkum þróunareinkennum og mismiklu vaxtarmagni. Matthías Viðar Sæmundsson sér gildi og innihald íslensku skáldsögunn- ar skreppa saman í flauelsfangelsi mark- aðslögmálanna7 en Gísli Sigurðsson talar um blómlega skáldsagnaritun er njóti þess að það sé „engin stefna“ lengur og engar forskriftir (72). Það er athyglisvert að þrátt fyrir alhæfíngar og að því er virðist mikla yfirsýn þessara manna, fetta þeir báðir fmg- ur út í tilhneigingar til að setja höfunda í hópa samkvæmt einkennum eða gildismati. Sjálfir komast þeir þó ekki hjá því að nefna nöfn máli sínu til stuðnings, frekar en aðrir sem vilja sjá útlínur í bókmenntasögunni. IV í þessu sambandi vil ég leiðrétta sérstaklega eitt atriði í erindi Gísla. Hann vísar í grein eftir mig þar sem hann segir mig nefna „nöfn Péturs Gunnarssonar, Einars Más Guðmundssonar og Einars Kárasonar, eins og þeir hafi allir skrifað mjög líkar bækur, bara af því að „strákar“ og „húmor“ koma fyrir í verkum þeirra“ (75). Þetta er rang- færsla á máli mínu; ég segi hvergi að þessir menn skrifi „mjög líkar bækur“, þótt ég telji að þeir séu bókmenntasögulega tengdir. Bókmenntasaga snýst að mínu viti ekki um að splæsa saman höfunda sem skrifa „líkar bækur“, heldur felst hún meðal annars í rökræðu um bókmenntaleg samkenni (og tekur hún þá oft til skáldverka sem um margt geta verið afar ólík). Lesendur Gísla gætu jafnframt haldið að hann sæki til mín „kenningu" sem í grein hans hljóðar sem svo „að Pétur Gunnarsson hafi lesið um Jón Odd og Jón Bjama árið 1974 og fengið hugmyndina að Punktinum sem sló í gegn árið 1976, tveimur árum síðar“ (76). Þessi undarlegu fræði hafa hvergi orðið til nema í höfði Gísla; þetta er „kenning“ sem hann virðist hafa heimasmíðað til þess að geta hafnað henni sjálfur með glæsibrag. í um- ræddri grein minni vík ég að því að kannski megi finna „eina af uppsprettum" bemsku- lýsinga áðurnefndra höfunda „í sögum Guðrúnar Helgadóttur um Jón Odd og Jón Bjama (og ef til vill fleiri bamabókum)“. Hvort sem það stensteða ekki, bendir margt til þess að umræddar bækur séu sprottnar af svipuðum rótum og að tiltekin kynslóð ís- lenskra lesenda skynji sterka samfellu á milli þeirra. Vitnisburður um slíka lestrar- reynslu er í sjálfum sér viss bókmennta- söguleg heimild.1' V En skyldi vera hægt að finna einhver sam- eiginleg einkenni leiðandi höfunda á þeirri tíð sem gjaman er kennd við það sem kemur „á eftir“ (póst-) einhverjum nútíma sem er þegar að baki? Eða erum við ef til vill svífandi í einhverju tómarúmi milli tvennra tíma? Er hægt að sjá einhver kennileiti? TMM 1992:2 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.