Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 47

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 47
órætt afl mannlífsins. Sjálfsveran, sem birt- ist í höfuðpersónum þessara verka, reynir að finna sér virkan stað í sögu sinni, en formgerðin mótast af innri átökum, skynj- unum, minningum, hugarlífi, sem oft lýtur ekki lögmálum epískrar framrásar eða sam- fellu. Inn í frásögnina leitar óreiða tilfinn- ingalífs, tungumálið bregst við misrökleg- um áreitum og textinn verður svið hljóms og mynda sem láta ekki endilega undirskip- ast sögulegri framvindu. Þama hygg ég að við séum að nálgast samkenni helstu lista- verka í skáldsagnagerð síðasta áratugar: frásagnarhættir þeirra em sveigðir að myndmáli og lýrískri tjáningu. Athugasemdir og tilvitnanir 1. I greininni „Fyrsta nútímaskáldsagan og módem- isminn" í hausthefti Skímis 1988 fjalla ég meðal annars um Tómas Jónsson metsölubók (1966) eftir Guðberg Bergsson sem verk er skipti meg- inmáli í tilurð samfellds módemísks viðmiðs í íslenskri skáldsagnagerð (en ekki í íslenskum bókmenntum almennt, eins og skilja má af orðum Páls Valssonar í nýlegri bók hans, þar sem hann kveður mig þeirrar skoðunar að „eiginlegar nú- tímabókmenntir verði ekki til að neinu marki fyrr en með Tómasi Jónssyni metsölubók [ . . . ]“. Þögnin er eins og þaninn strengur. Þróun og samfella í skáldskap Snorra Hjartarsonar (Stu- dialslandica48). Reykjavík 1990.Bls. 15).Mód- emismi mddi sér talsvert fyrr til rúms í bæði ljóðlist og smásagnagerð. 2. Hér er gert ráð fyrir hugmyndum og viðhorfum sem rikjandi vom á þeim tíma. Sögulegt sköpulag skáldsögunnar er að sjálfsögðu skilyrt af sjónar- hóli þess sem les í breiðum dráttum, þannig að jafnskjótt og einhver tekur t.d. að skilja ýmis verk Þórbergs Þórðarsonar sem „skáldsögur" breytist mynd þess túlkanda af þróun skáldsagnagerðar. En sé mið tekið af bókmenntalegum viðtökum á hverjum tíma, viðteknum hugmyndum um hvað sé „skáldsaga“, verður að líta á verk Þórbergs sem andófsumbrot í sagnalist sem á sköpunartíma sínum sækir sér meðal annars afl í það að vera „ekki skáldsaga“. Sjá varðandi Þórberg grein mína „Baráttan gegn vemleikanum" í hausthefti Skírnis 1989 (bls. 293-314), og grein Péturs Gunnarssonar, „Þórbergur og skáldsagan" í Tímariti Máls og menningar 1989:3 (bls. 319- 325). 3. Guðbergur Bergsson: Anna. Reykjavík (Helga- fell) 1969. Bls. 249. 4. Gísli Sigurðsson: „Frá formi til frásagnar. Munn- menntir, bókmenntasaga og íslenskur sagna- skáldskapur 1980-1990“, TTmarit Máls og menningar 1992:1. Bls. 69-78. Eftirleiðis verður vísað til þessarar greinar með blaðsíðutali í svig- um innan meginmáls. 5. HalldórGuðmundsson: „Sagan blífur. Sitthvaðum frásagnarbókmenntir síðustu ára“, Timarit Máls og menningar 1991:3. Bls. 50 og 51. Frekari blaðsíðuvísanir í þessa grein eru innan megin- máls. 6. Nefna má hér sem dæmi viðhorf Johns Barths, Umbertos Ecos, Suzi Gablik og Fredrics Jamesons, sbr. grein mína, „Hvað er póstmódem- ismi? Hvernig er byggt á rústum?“, Tímarit Máls og menningar 1988:4. Bls. 436-437 og 442-447. 7. Sbr. greinar hans, „Markaður, ríki, bókmenntir" og „Blekking og þekking“ í Myndir á sandi, Reykjavík (Bókmenntafræðistofnun Háskóla Is- lands) 1991. Bls. 14-54. 8. Sbr. umrædda grein mína, „Myndbrot frá bam- æsku. í tilefni af sögum Gyrðis Elíassonar". Skírnir 1990, hausthefti. Bls. 473. í greininni vitna ég (bls. 472) f viðtal við Helgu Kress þar sem hún segir unga karlhöfunda hafa orðið fyrir áhrifum af Jóni Oddi og Jóni Bjama. Hún segir ekki að þessir höfundar sæki sjálfa hugmyndina að bemskusögum sínum til Guðrúnar Helgadótt- ur, þannig að „kenningu" sína hefur Gísli ekki sótt til Helgu frekar en mín. 9. Pétur Gunnarsson: [Ritdómur um Gunnlaðar sögu]. Skímir 1988, vorhefti. Bls. 202. 10. Ég er hér ekki að gefa í sky n að lesandi sé endilega óvirkur er hann les t.d. hefðbundna raunsæissögu, en þær sögur sem ég vísa til búa yfir formgerð sem gerir kröfur til lesandans um róttæka þátttöku í samfellingu þeirra þráða og brota sem úr verður saga. TMM 1992:2 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.