Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Page 105
en kaup karla haldist óbreytt þ.e. 300 kr. Krónu- tölur hér eru réttar en mikið vantar á að vit sé í frásögninni. Smjörlíkisgerðirnar voru ekki að- ilar að þessu samkomulagi og fólkið þar hélt sínu óbreyttu. Hvað aðra Iðjufélaga varðar voru þetta þeirra fyrstu samningar og það er áreiðan- lega rangt að kaup hafi lækkað. Hélst það í þó nokkur ár að smjörlíkisgerðimar greiddu hærra kaup en aðrar verksmiðjur. Lokaorð Vandséð er hvernig treysta megi öðrum köflum ritsins í ljósi þessa. „Þörfin knýr“ er fyrst og fremst lítt röðuð endursögn afmælisrita og fundargerða. Þó svo taldar séu upp í heimilda- lista nokkur þeirra fræðirita sem út hafa komið um verkalýðshreyfinguna og þróun hennar virðist höfundur þeim í meginatriðum ókunnur eða telja sér þau óviðkomandi. Á bls. 51 virðist þó svo sem höfundur sé að einhverju leiti ósam- mála fræðimönnum og nefnir hún í því sam- bandi Stefán F. Hjartarson. Alveg er þó á huldu um hvað ágreiningurinn á að snúast og fjarar þessi kafli út í markleysu líkt og svo margir aðrir. Bókin virðistekki hafa verið prófarkalesin og úir og grúir af ambögum, beygingarvillum og prentvillum. Á þeim 12 síðum sem um Iðju fjalla taldi ég 21 prentvillu. Virðist svo sem bókin sé einfaldlega skrifuð af fingrum fram án tilraunar til skipulagningar eða kerfisbundinna tilrauna til að leita svara. Allt er ritið flausturs- legaunnið(hvaðert.d. „S.Þ. Rv. 1948“ ítilvitn- anaskrá bls. 386?) og af lítilli virðingu fyrir lesendum. í bókinni er illa vitnað til heimilda og viðhorf til þeirra er ótrúlega ógagnrýnið. Þá sjaldan gagnrýni er hreyft byggir hún á innantómum sleggjudómum. Er vandséð að af þessu riti megi nokkurt gagn hafa og má raunar ganga lengra og halda því fram að bókin geti verið varasöm sem heimild eða leiðbeining. Ingólfur V. Gíslason Göldrótt örlagasaga Egill Egilsson. Spillvirkjar. Iðunn 1991. 188 bls. Það var einkennilega hljótt um síðustu skáld- sögu Egils Egilssonar, Spillvirkja, á liðnum vetri, nema hvað hún var ein af fimm bókum sem tilnefndar voru til Menningarverðlauna DV. Að vísu birtust um hana tveir blaðadómar, sem hvorugur gerði henni verðug skil, þó annar væri að vísu jákvæður. Ekki er mér grunlaust um að nafn sögunnar kunni að hafa fælt ein- hverja málvanda menn frá henni; að minnsta- kosti kom það illa við mig. Hinsvegar hef ég það eftir traustum heimildum að „spillvirkjar" hafi verið og sé kannski enn góð og gild norð- lenska, og þá verður vitaskuld að hafa það eins- og hvert annað hundsbit, þó óneitanlega sé orðmyndin ankannaleg og stangist á við ströng- ustu málfræðireglur. Hvað sem annars má um nafngiftina segja, þá fer hitt ekki milli mála, að hér er á ferðinni fágætlega hnitmiðað og magnað skáldverk sem með ótvíræðum stflgaldri leiðir lesandann um klungur þess örbirga og úrræðalausa umhverfis sem þorri Islendinga bjó við frammyfir síðustu aldamót. Omennsk harðneskja við menn og málleysingja átti sér rætur í vægðarlausum um- heimi valdníðslu og misréttis, sem uppvakti allt það versta í mannlegu eðli: sérgæsku, umburð- arleysi, tilfinningakulda, ástleysi og hrottaskap. Um þessar óbyggðir innri og ytri niðurlægingar ferðast lesandinn í fylgd höfundar sem af glöggu innsæi og umtalsverðri orðkynngi slær ýmist á strengi trega eða glettni, þannig að nöturlegt og nálega óbærilegt lífshlaup sögu- hetjunnar, Jóns Edilonssonar, verður með köfl- um hinn furðulegasti skemmtilestur. Þetta hárfína jafnvægi milli kankvísi og blóðugrar alvöru er meðal þess sem gerir Spillvirkja eftir- minnilega reynslu. Þau eru ekki ýkjamörg ís- lensku skáldverkin á síðustu árum sem gengið hafa jafnnærri mér tilfmningalega og þessi grá- glettna lífssaga manns, sem hafði næstum allt á móti sér þegar hann leit dagsins ljós: uppruna, umhverfi, uppvaxtarmöguleika og lífsafkomu. TMM 1992:2 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.