Gripla - 20.12.2007, Page 202

Gripla - 20.12.2007, Page 202
GRIPLA hólmskirkju vetrarlangt og flutt heim í þar til gerðum kassa. hann — land: skrifað á spássíu. ekkjuna: Nicoline Petrine Thestrup. Tærgesen: Peter T. kaupmaður í Reykjavík. þó borgunin — lestarrúm: skrifað á spássíu. Kock sjálfan: óvíst við hvern er átt. Aanensen: Peder A. skipstjóri á póstskipinu. próf. — Pálss[on]: Ólafur Pálsson dómkirkjuprestur. Rvík, 16. nóv. 1859. Ástkæri vin! Það er ætíð mikill munur og mikið vik milli vina, þegar annar er ungur en hinn er gamall, en sá gamli getur þó ekki að sér gjört að elska hina yngri sem hann þekkir að mörgum fullkomlegleikum, og án lengri formála þakka eg þér fyrir allt elskulegt og bið þig að erfa það ekki við mig að eg er orðinn gamall og stirður. — Við hjónin erum og orðin mjög heilsutæp og í mörgu falli þreytt á lífinu; við erum hætt að leika okkur, og vonum að vinir okkar furði sig ekki á því. En hvað sem þessu líður þá ertu og verður mér ætíð kær. – Efni bréfs þessa er nú einkanlega að eg eftir umtali seinast, sendi þér blöðin mín við greftrun Repps sáluga og bið þig ráða því hvört þau eigi að prentast eður ekki. – Mér fylgir það að þegar eg les á eftir það sem eg áður hefi skrifað, finnst mér ekkert eður lítið til þess koma, þótt aðrir hafi látið sér lynda. — Satt að segja kom þetta svo flatt upp á mig, að eg í mesta fumi og flýti, ef ei þér að segja, sorglegu æði páraði – svo að penninn var ekki hvíldur — það sem mér datt fyrst í hug. — Eg hefi í afskriftinni engu breytt — hvörsu mjög sem mig langaði til þess. — Eg vildi ekki nokkur maður gæti sagt að eg hefði á eftir viljað bæta úr skák. — Eg minntist við þig á, að mér hefði dottið í hug að bæta ýmsum athuga- semdum við eður því sem heimurinn og danskurinn kallar Anekdoter. En þegar eg hugsaði mig um, áleit eg það ótækt að bæta því við orð prestsins, sem kastaði rekunum á sinn mest elskaða af öllum hans skólabræðrum. — Skyldi svo fara að þið gæfuð út hans ævisögu, vil eg leggja það til að mér þar gæfist tækifæri til að bæta einhvörju við, enginn lifir nú á dögum sem, eins og eg, þekkti líf hans frá upphafi; presturinn eður síst biskupinn getur við gröf æsku- vinarins komið fram með allt þessháttar, en ýmsu ef ei flestu má hreyfa í ævi- sögu, þar sem um annan eins dánumann er að tala, þann tímann sem við vor- um saman á beggja ungu og bestu árum. Mig varðar um ekkert nema það sem eg hefi sjálfur þekkt og reynt. — Ef þið viljið nota þessi mín flýtisorð — ræðustubbana — hvað eg öldungis fel þér á vald — bið eg þig ekki einungis gæta réttritunar, heldur gef eg þér fullan myndugleika til að breyta orðum þar 200
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210

x

Gripla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gripla
https://timarit.is/publication/579

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.