Skagfirðingabók - 01.01.1970, Síða 26
SKAGFIRBINGABÓK
Þann 20. október 1788 var réttur settur á Víðivöllum í þessu máli af
sýslumanni Skagfirðinga, Vigfúsi Scheving. Málsækjandi var Ás-
mundur Jónsson, hreppstjóri.1 Sem vitni voru kölluð Páll Jónsson,
Þórunn Bjarnadóttir og Hólmfríður Jónsdóttir,2 öll til heimilis á Hof-
stöðum, Hafliði Jónsson3 á Hofdölum og Jón Björnsson4 5 á Svaðastöð-
um. Þessir voru meðdómsmenn: Henrik Eiríksson,® Jón J., Vilhjálmur
Vilhjálmsson,6 Sigurður Tómasson,7 Björn Guðmundsson,8 Hjálmur
Steingrímsson,9 Gísli Þorsteinsson og Jón Jónsson. Við réttarhöldin
upplýstist málið til fulls. Lagðist þar á eitt samhljóða framburður
vitna og játning hinnar ákærðu. Um meðkenningu Ingibjargar segir
svo í Dómabókinni:
„Ingibjörg Jónsdóttir fyrir réttinum examíneruð gjörir laus og lið-
ug svolátandi hreina meðkenning. Að hún eins og áður meðkennt
hafi á Hofstöðum, hafi á yfirstandandi sumri ólétt verið og faðir að
barninu sé Guðmundur Einarsson vinnumaður á Mið-Mói í Fljótum.
Barnið hafi hún lifandi fætt í fjósinu á Hofstöðum, tímanlega á
sunnudaginn þann 14. eftir Trínitatis. Lagt það svo í bás sunnan
fram í fjósinu, en klætt sig úr grárri peysu, sem hún hafi í verið og
farið með hana út í lækinn, sem rennur hjá fjósveggnum, vætt þar og
gengið svo aftur í fjósið, tekið barnið, sem hún segir sér hafi virzt vera
lifandi og vafið peysunni utan um það, í hvörri það hafi legið til á
mánudagsmorguninn, þá hafi hún látið svartan lepp utan um það
1 Ásmundur Jónsson, bóndi á Úlfsstöðum og Silfrastöðum, hreppstjóri í
Akrahreppi 1785—1794.
2 Þær Þórunn og Hólmfríður munu hafa verið vinnukonur Páls.
3 Hafliði Jónsson, bóndi á Hofdölum 1785—1824.
4 Jón Björnsson bjó alla sína tíð á Svaðastöðum (1746—1815).
5 Hinrik Eiríksson bjó á Þorleifsstöðum 1786—1791 o. v.
6 Vilhjálmur Vilhjálmsson, lengstum bóndi á Hellu (1791—1813).
7 Sigurður Tómasson, b. á Miðsitju 1785—1792 og Syðstu-Grund 1792—
1801.
8 Björn Guðmundsson, bóndi í Litladal í Blönduhlíð 1787—1800 og
Hrólfsstöðum 1802—1812.
9 Hjálmur Steingrímsson í Víkurkoti 1789—1797 og bóndi á Vöglum
1798—1805.
24