Skagfirðingabók - 01.01.1970, Page 27
SÍÐASTA AFTAKA í SKAGAFIRÐI
og grafið svo í hauginn sunnan undir fjósinu á Hofstöðum, þar sem
hún síðan vísaði til þess".
Eftir svo skýlausa játningu þurfti að sjálfsögðu ekki frekar vitn-
anna við, og var nú ekki annað fyrir en dæma hina seku. Dómurinn
hljóðaði svo:
„Ingibjörg Jónsdóttir, sem ei einasta forsómað hefur að brúka
þau réttu og tilskikkuðu meðul við sína barnsfæðing, heldur að öngv-
um manni viðverandi eður tilvitandi barn alið í fjósinu á Hofstöð-
um þann næstliðinn 14. sunnudag eftir Trínitatis og það sama með
fullum vilja og ásetningi deytt og fyrirkomið, skal fyrir svo óviður-
kvæmilegan og ókristilegan ógjörning sér sjálfri til velforþénts straffs
og öðrum til viðvörunar 5 sinnum klípast með glóandi töngum, hennar
hægri hönd lifandi afhöggvast með öxi og síðan höfuðið, hvar eftir
líkaminn leggist á steglur, en höfuðið ásamt höndinni festast upp á
stjaka".
Eins og skylt var, þá var héraðsdómurinn tekinn upp á alþingi.
Þangað var því Ingibjörg flutt sumarið eftir og dæmd af hr. vice-lög-
manni Magnúsi Stephensen.
Svo segir í Lögþingisbókinni:
„Þann 18. júlí F:m. settist í dómarasæti Hr. Vice-lögmaður M. Step-
hensen og afsagði eftirfylgjandi Lögþingisréttardóm í dulsmáls og
morðsök Ingibjargar Jónsdóttur úr Skagafjarðarsýslu.
Bæði er það af samstemmandi vitna framburði og Ingibjargar Jóns-
dóttur óneyddri meðkenningu fyrir Héraðs- og þessum Lögþingisrétti
óefandi, að nefnd Ingibjörg, fyrrverandi vinnukona á Hofstöðum í
Skagafirði, hafi á næstliðnu sumri þann 14. sunnudag eftir Trínitatis
lifandi barn í heiminn fætt í fjósinu á Hofstöðum svo enginn til vissi,
lagt það þar í einn básinn en fært sig úr peysu sinni og gengið með
hana út í læk hjá fjósinu, vætt hana þar, gengið í fjósið aftur og vafið
peysunni alvotri utan um barnið, sem ennþá var með litlu lífi, látið
svo liggja þar til morguns. Þá tók hún peysuna utan af barninu, en
vafði það í svartan lepp og gróf í rústarhaug sunnan undir fjósinu,
og fannst það þar, sem hún sjálf vísaði til. Obductions-gjörningur
chirurgi Jóns Péturssonar gefur einninn vissu um, af öllum þeim
óbrigðulu kennimerkjum að barnið hafi fullaldra verið og lifandi
25