Skagfirðingabók - 01.01.1970, Side 103
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
Svo sem sjá má af þessum ákvæðum, þá eru leiguliðum boðin mun
betri kjör við kaup ábýlisjarða sinna en öðrum. Telst mér til, að 83
leiguliðar hafi eignazt ábýlisjarðir sínar við uppboðin, en 63 aðrir
kaupendur hafi keypt 91 jörð eða þar um bil. Það er dálítið erfitt að
gera sér grein fyrir því í einstökum atriðum, hvað er talin sjálfstæð
jörð, þ. e. skv. 3. gr. skilmálanna, þær eru einhvers staðar á milli 90 og
100. Hér eru þær jarðir taldar sjálfstæðar, sem greinilega hafa verið
uppboðnar sér. Sést það á ákveðinni upphæð, sem fyrir þær hefur
verið boðin. Þannig er t. d. Flugumýri og Réttarholt talin ein jörð
ásamt Torfmýri, en Efra- og Neðra-Haganes tvær. Ennfremur er
Drangey talin hér sem jörð, þótt þar hafi aldrei verið stundaður bú-
skapur í þess orðs merkingu. Á stöku stað hafa tveir leiguliðar boðið
sameiginlega í jörð sína, og hef ég talið það tvær jarðir, þ. e. farið
eftir fjölda leiguliða, en ekki jarðanna skv. 3. gr. Þó má vel vera, að telja
eigi þær jarðir óskiptar, og vitað er, t. d., að landaskipti milli Hofs
og Litluhlíðar voru ekki þinglesin fyrr en 1808, þannig að telja ber þær
eina jörð við söluna.
Varðandi lið 2 í skilmálunum, þá berst leyfið frá konungi ekki
fyrr en tveim árum eftir uppboðið, er dags. 2. maí 1804.16
Með hliðsjón af 4. lið skilmálanna virðist svo sem þeir hafi ekki
verið margir, sem reiddu greiðslur af hendi þegar við uppboðið. Höf-
uðbók yfir greiðslur 1. árs er gerð 1805, og verður ekki annað af henni
séð en þá séu loks hafnar greiðslur fyrir jarðirnar ekki síður af hálfu
„framandi" kaupenda en leiguliða. Hins vegar er ekki annað að skilja
á 4. lið, („.sem aðrir kaupendur strax skulu betala,.") en að
þar sé átt við, að greiðslu Vi verðsins skuli „framandi" kaupendur
inna af hendi um leið og jörðin hafi verið slegin þeim á uppboðinu.
Þá eru dagsetningar í höfuðbókinni ekki réttar, því þar virðist miðað
við árið 1805. Annað gæti og rennt stoðum undir þetta. í 6. lið skil-
málanna segir: „...sömuleiðis ef hann innan þessara þriggja ára
betalar kaupverðið, eða nokkuð af því, verða honum gottgjörðar rentur
af því, sem hann svoleiðis betalað hefir". Þarna er átt við það, að
leiguliða er eftirgefin eða endurgreidd sú upphæð kaupverðsins, sem
nema mundi vöxtunum á tímabilinu frá uppboðsdegi til þess, er hann
samkvæmt skilmálunum ætti að greiða fyrstu afborgun í jörðinni. Hún
101