Skagfirðingabók - 01.01.1970, Page 110
SKAGFIRBINGABÓK
bréfi, sem sr. Magnús Árnason, er þar var þá prestur, ritar þeim 3.
ágúst þ. á. 27. júlí ritar Sveinn Jónsson á Knappsstöðum þeim bréf
um eignir kirkjunnar þar, og annað 29. júlí um eignir Barðskirkju. 31.
júlí ritar sr. Árni Snorrason í Felli þeim hliðstætt bréf. Sr. Benjamín
Jónsson, prestur í Hofs- og Miklabæjarsóknum, ritar bréf 3. ág. í Gröf
og annað 4. ág. á Hofi, sama dag og uppboðið var haldið. Það bréf
vantar í bréfaskrána. 6. ág. ritar sr. Þorkell Ólafsson á Hólum þeim
bréf varðandi Hraun í Sléttuhlíð, sem stóllinn átti að hálfu, upplýs-
ingar, sem raunar er ekki líklegt, að hefðu þurft að vera fyrir hendi,
er jörðin var boðin upp; það bréf barst þeim ekki fyrr en 18. ág.
Sr. Þorkell ritaði þeim annað bréf sama dag, og berst þeim það 10.
ágúst. Sr. Magnús á Ríp ritar þeim tvö bréf, 3. og 4. ágúst, sem þeim
barst þann 6. og 7. Honum lá síður á en þeim sr. Sveini og sr. Árna,
þar sem hann vissi, að þeir kæmu aftur. Frá sr. Jóni Jónssyni í Goð-
dölum fá þeir bréf 14. ágúst (ritað 10. s. m.) og annað 18. ágúst.
Séra Eggert Eiríksson í Glaumbæ ritar þeim bréf 19. ágúst, sr. Magnús
Magnússon í Hvammi 23. ágúst, sem þeim barst í hendur sama dag,
ásamt öðru frá sr. Magnúsi Árnasyni á Fagranesi. Þá virðast þeir hafa
lokið starfi sínu í Skagafirði, því 28. ágúst eru þeir komnir vestur í
Höskuldsstaði á Skagaströnd.
Þó að þessar bréfagerðir séu allar til, þá felst þar í rauninni eng-
in sönnun fyrir tilhögun uppboðanna og skal því ekkert fullyrt um
hana.
Sé því slegið föstu, að með extraþingi því, sem sr. Magnús á Ríp
nefndi í bréfi, eigi hann við uppboðsþingið, eru aðeins þrjú uppboðs-
þing, sem ég hef áreiðanlega vitneskju um. í bréfabók Stephensens er
afrit, dags. 14. febr. 1805, og er hann þar að skýra Stefáni amtmanni
Þórarinssyni frá afturköllun Þorfinns Magnússonar á Lambanesreykj-
um á tilboði hans í jörðina Miðhús í Óslandshlíð, sem honum var
slegin við uppboðið á Hofi 4. ágúst 1807. Þar skýrir hann einnig frá
því, að sr. Snorri á Hjaltastöðum hafi keypt þá jörð á uppboðinu á Ökr-
um 12. ágúst. 4. júní 1803 ritar sr. Eggert í Glaumbæ þeim félögum
bréf varðandi Húsabakka og Gísla Gíslason er þar bjó, og kemur þar
fram, að extraþing hafi verið haldið á Seylu 18. ágúst fyrra árs. Á sama
blaði er einnig bréf ritað 2. júní frá sr. Eggerti og hreppstjórunum í
108