Skagfirðingabók - 01.01.1970, Síða 124
SKAGFIRBINGABÓK
8. Beingarður (í eyði)
Dýrl. 6 hundr. Páll stúdent Árnason á Ríp keypti jörðina á 16
rd. 32 sk. Fyrsta greiðsla 1805, 5 rd. 74 sk., lokagreiðsla 1807, 11 rd.
21 sk. — Haustið 1808 (1809 segir í Jarða- og búendatali) seldi Páll
Jóni sýslumanni Espólín Beingarð á 24 rd., og lét hann byggja jörð-
ina til ábúðar vorið eftir. Tveim árum síðar seldi Espólín hana Sig-
urði Péturssyni í Ási.G
AKRAHREPPUR
1. Dýrfinnustaðir og Brekkukot
Dýrl. 40 hundr., lsk. 1 hundr. og kúg. 1 á Dýrfinnustöðum, en
dýrl. Brekkukots er 10 hundr., Isk. 60 áln. og kúg. 2, segir í Lovs. í
söluskrá er hins vegar aðeins nefnt eitt kúg. á hvorri jörð. Keypti
annað þeirra Ingiríður Jónsdóttir í Brekkukoti á 9 rd. 48 sk., en
Sigurður Snorrason (síðar sýslumaður Húnvetninga) keypti kúg. á
Dýrfinnustöðum á 9 rd. 64 sk. Jarðirnar keypti Ólafur Þorleifsson,
er bjó á Dýrfinnustöðum 1802—1846, var áður á Brekkukoti fremra.
Kaupverðið 212 rd. — Lsk. 1805 er 6 rd. 72 sk. — Greiðsla 1807,
102 rd. 22 sk., en lokagreiðsla fór fram 1812, 32 rd. 38 sk. — Jarða-
og búendatal segir, að Þorkell Jónsson, bóndi á Svaðastöðum 1819—
1831, hafi orðið eigandi jarðanna, og víst er það, að 1842 er Ólafur
leiguliði.
2. Axlarhagi
Dýrl. 24 hundr., lsk. 90 áln., kúg. ekkert, segir í Lovs. Söluskráin
getur um 2 kúg., sem Jónas sýslumaður Scheving hafi keypt á 17 rd.
48 sk. Sigurður Sæmundsson, er bjó í Axlarhaga 1802—1814, keypti
jörðina á 144 rd. — Lsk. 1805 er 3 rd. 36 sk. Árið 1805 eru greiddir
101 rd. 73 sk., en lokagreiðsla fór fram 1813, 20 rd. 39 sk. — Jarða-
og búendatal telur kaupanda hafa verið Sigfús Björnsson á Svaða-
stöðum, en hann lézt 1804, skv. sama riti. Söluskráin getur þess hins
122