Skagfirðingabók - 01.01.1970, Qupperneq 188
SKAGFIRBINGABÓK
sérlega vel á móti okkur. Við riðum þrímenningarnir út í Hofsós fyrir
stuttu, og þaðan upp að Enni, ég hef ekki komið þar fyrri. Vel lízt mér
á dóttur sýslumannsins.4 Það er falleg stúlka og hefir mikinn svip af
föður sínum. Ekki veit ég hvað að ykkur gengur að biðja hennar ekki,
Jóni bróður, sem svo oft hefir verið þar. Fríðari er hún en Stein-
unn, dóttir amtmanns Bjarna, sem séra Pétur bróðir minn hugðist vilja
láta Jón bróður eiga, en vel leizt mér á hana. Pétur Havsteen óskaði
mikillega, að Jón fengi syðri Múlasýsluna og þeir gætu báðir verið á
Ketilsstöðum og lét sem hann ætti erfitt þar vestra. Ég hef ekkert
bréf frá hönum fengið síðan í vetur, og þá lét hann ekki illa af því.
Ekki stendur þér það fyrir við stúlkurnar hérna, þó þú segist vera far-
inn að hærast, ef þú annars villt sjálfur nokkra þeirra. Ég hef lengi
verið gráhærð, og maðurinn minn er orðinn hvítur á bartana, svo mér
þykir það ekkert óvanalegt. Þó segja sumir mér fari ekkert aftur, en
það eru nefnilega þeir, sem ekki sjá eður skoða upp í mig, tannpínan
kyssti mig oftast hér um veturinn.
Ég man ekki, hvað eftir er af fólki, sem þú þekkir. Mig minnir ég
segði þér um Eggjarfólkið. Það er bæði vænt og vel metið í sínu standi
og hefir verið okkur eins og góð systkin. — Ari Arason er giftur og
fær konan gott orð og ég meina hann eins, síðan hann átti hana. Nú
held ég þér sé farið að leiðast öll þessi mælgi, elskan mín góð! fyrir-
gefðu mér allt þetta ljóta blað. Litli Pétur biður að heilsa þér hjartan-
legast. Ég held hann geti ei skrifað þér núna. Vertu ævinlega blessaður
og sæll, góður guð veiti þér allt betur en ég get beðið hann. Þín af
hjarta elskandi systir.
Elinborg Pétursdóttir.
4 Lárus Thorarensen (1799—1864) var þá sýslumaður Skagfirðinga og bjó
í Enni. Hann átti eina dótmr barna, Maren, er giftist Jóhannesi Guðmundssyni,
sýslumanni. Þau voru foreldrar Jóhannesar, baejarfógeta á Seyðisfirði og í
Reykjavík.
186