Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Blaðsíða 30
Múlaþing
Ari Arnalds, sýslumaður.
Myndin er úr œviminningum hans.
þessir embættismenn sín tæki; sýslumaður
hélt á eirplötu í vinstri hendi af þeirri stærð
að þægilegt var að stinga henni niður í
frakka, eða frakkavasa, en í hægri hendi
hélt hann á uppboðshamrinum sem var
snotur fundarhamar og danglaði hann í
eirplötuna þegar hann lauk sölunni við
þriðja högg. Uppboðsritari hélt á sinni bók
sem var venjuleg stílabók og skrifaði í hana
nafn hæstbjóðanda og verðupphæð boðsins.
Til þess notaði hann sjálfblekung. Það kom
sér því vel að úrkomulaust var meðan á
uppboðinu stóð svo að ekki rynni til blekið
í uppboðsbók ritarans. Gísli ritari tyllti sér
niður á stein eða á viðarbút meðan hann
bókaði uppboðsgjörðina.
Kvöld var komið þegar uppboðinu lauk
inn á Hánefsstaðaeyri. Aldan skilaði fógeta
og fylgdarliði hans heim eftir all-
umfangsmikið uppboð þegar seld voru 34
sölunúmer fyrir kr. 2.791.-, söluverð sem
við bættist kr. 13 krónur og 50 aurar í
innheimtulaun (5%) svo heildarverðið varð
kr. 2.930 krónur og 85 aura. Gjalddagi 31.
ágúst.
Önnur uppboð sem haldin voru á
strandgóssi Sterlings í Seyðisfjarðarkaup-
stað eru mér ókunn nema hvað sagt er frá í
strandgögnum hér að framan. Eg kom ekki
á neitt þeirra. Munu þau hafa farið vel fram,
og heyrði ég að þar hefðu ýmsir gert góð
kaup.
Smáhnupl
Þótt vel og samviskusamlega væri fylgst
með öllu strandgóssinu úr Sterling, fór ekki
hjá því að smávegis hnupl ætti sér stað. Um
það getur Ami Vilhjálmsson, í frásögn sem
birt er hér að framan, að strax á fyrsta eða
öðmm degi, þegar björgun var hafin á
vömm úr lestum Sterlings, hafi einum kassa,
að hann áleit, með 12 vínflöskum í, verið
hnuplað. Það mun rétt vera sem Ami segir
þar um. Ég heyrði minnst á þetta heima
næsta dag, gleðskap þann sem hnuplinu
fylgdi þama um borð í skipinu og hentu
menn gaman að.
Það var líka minnst á að ýmsir hefðu
krækt sér í handsápur þegar sjóblautur
sápukassi liðaðist sundur og sápan úr honum
lá á dekkinu. Eitthvað fleira smávegis var
sagt að einstaka maður hafi nælt sér í og
hælt sér af. Um þetta gengu sögur, efalítið
orðum auknar og sumar þeirra sagðar í gríni
svo ekki var gott að trúa þeim.
Eina sögu þessu viðvíkjandi heyrði ég og
28