Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Page 55
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Mannanöfn í
stöðfirskum ömefnum
egar ég ákvað að skrifa þessa ritgerð
fyrir um ellefu árum (1986), þá
nemandi í Alþýðuskólanum á Eiðum,
óx mér verkefnið verulega í augum. Ég
vann verkið þannig að ég sendi nokkrum
aðilum spumingalista með þeim ömefnum
sem ég gat fundið. Einnig bar ég fram ósk
um að fá að spyrja þá síðar um ömefnin og
fékk mjög góðar undirtektir. Fyrir mér
vakti að vita eftirtalin atriði:
1. Staðsetningu ömefnanna.
2. Tímasetningar.
3. Hvaða mannanöfnum og atburðum
nöfnin tengdust.
Mun ég nú hér á eftir gera grein fyrir
örnefnum þeim, sem komu fram í
dagsljósið við leit mína. Mörg þeirra er að
finna í skrám Ömefnastofnunar Islands yfir
örnefni í Stöðvarhreppi. Önnur komu upp í
hugann hjá sumum viðmælenda minna
þegar ég var að leita heimilda hjá þeim. I
stafrófsröð em ömefni þau sem ég fjalla um
þessi:
Tel ég þó eðlilegra að fjalla um örnefnin
eftir landfræðilegri röð og er uppdráttur af
Frá Stöðvarfirði, Kambanes og Súlur.
Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson.
Örnefnin í stafrófsröð
Andrésartangi, Arnoddarurð,
Asdísarbotn, Arnahraun, Bárðarpyttir,
Bessavogur, Betubotn, Bjargarétt/
Bjargarrétt, Carlshús, Carlsklettur,
Daníelshylur, Egilsfjara, Einarsstaðir,
Erlendarreitur, Erlendarribba og
Erlendarvör, Erlendartótt/ Jónstótt,
Gunnarstindur og Gunnarsskarð,
Grettishjalli, Gvendarbrunnur, Herdísar-
búr, Jakobssker, Jónsbás, Karlsbrekkur,
Karlsmýri, Kristínartótt, Pálskvos,
Péturstótt, Ragnhildarjaðar, Snorragil og
Snorralœkur, Steingrímur, Steinshjalli,
Sveinsgjóta, Vilborgarhraun, Þorsteinsgat
og Þurugjögur.
Stöðvarfirði á næstu síðu. Inn á hann eru
ömefnin merkt með tölustöfum og einnig
þeir bæir sem nefndir em. Þeir eru merktir
með bókstöfum.
1. Bjagarétt/ Bjargarrétt
Bjargarétt / Bjargarrétt er staðsett á milli
Bæjarstaða og Landa, ofan við þjóðveginn
og sést frá honum. Er hún afmörkuð frá
náttúrunnar hendi á tvo vegu. Telja sumir
að hún heiti eftir konu að nafni Björg
53