Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Page 70
Múlaþing
Úlfheiðarsteinninn frá Hofi er varðveittur á
Þjóðminjasafninu.
Mynd úr Arbók Hins íslenzka fornleifafjelags
1896.
sem var hér ekki heimavanur, var horfínn út
um fjöll og fímindi og gerði hann sér ekki
mikla von um að fínna hann aftur.
Morguninn eftir varð ég að fara héðan;
hefði þó allt eins viljað vera dag um kyrrt.
En leiðsögumaður minn vildi komast heim
í heyskapinn og ég varð að fylgja honum.
Næsta dag komst ég nærri kaupstaðnum á
Vopnafírði. Hér var svipað umhorfs og í
Strandasýslu: mest einstök fjöll, gerð úr
trapsteini, blágrýti og ýmiskonar leir,
misjafnlega hörðum, eitt lagið upp af öðm.
Hinir mörgu smáfirðir, sem skerast inn í
austurströndina svo langt sem Múlasýsla
nær, em einnig nauðalíkir þeim í Stranda-
sýslu. En kaupstaðimir sjálfir vom hér
mjög ólíkir þeim norðlensku þar sem ekki
er hægt að ganga um torgið eða kringum
verslunarhúsin án þess að sökkva í leir og
mold. Hér var hið eiginlega svokallaða torg
milli verslunarhúsanna bæði hækkað upp
og steinlagt og ekki nóg með það heldur var
það girt með breiðum og háum vel hlöðnum
grjótgarði, jafnvel mddir sléttir vegir að
staðnum. Fallegur, stór og vel girtur urta-
garður var sunnan undir húsunum á
Vopnafírði. Nokkrar ferðir fór ég meðan ég
dvaldi hér við kaupstaðinn. Meðal annars
reið ég með Krabbe kaupmanni og konu
hans að prestsetrinu Hofí til að vera við
útför prestsins, Guðmundar Eiríkssonar. Sá
gamli siður, sem enn helst á nokkmm
stöðum á landinu, var hér aflagður að
viðstaddir krypu við moldirnar og gerðu
bæn sína eftir að mokað hafði verið ofan í
gröfína. Kirkjan var löguleg og rúmgóð
með forkirkju en þar lá legsteinn á gólfí
undir stórri kistu upp við annan vegginn.
Þetta var grófur sandsteinn fjögra álna
langur og ein og kvart alin á breidd. Á hann
var höggvin kona í fullri stærð. Klæðnaður
hennar var mjög frábragðin því sem nú
tíðkast á Islandi. Höfuðbúnaður hennar var
68