Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Blaðsíða 91
Foxleiðangurinn
Klausan í bók Halldórs Stefánssonar
A bls. 58 og næstu síðu í bók Halldórs
Stefánssonar Þættir úr sögu Möðrudals á
Efra-Fjalli, sem kom út á Akureyri 1943,
er kafli um Sigurð Jónsson og Astríði
Vemharðsdóttur í Möðrudal. Á bls. 62 er
eftirfarandi klausa:
„Til er samtímalýsing af Sigurði bónda.
Árið 1860, er hinn svokallaði Fox-leið-
angur var gerður til að athuga um síma-
lagningu til Islands og yfir land, komu
leiðangursmennimir í Möðrudal. Lýsa þeir
Sigurði svo, að hann hafi verið hár maður
og vel á sig kominn á vöxt, fríður sýnum,
höfðinglegur og vel menntur. Segja þeir, að
á búinu hafi verið 6-8 hundr. sauðfjár. Við-
tökur, viðmót og heimilishættir þótti þeim
vera með ágætum og bera vott um vel-
megun og menningu. Stórhrifnastir vom
þeir þó af Aðalbjörgu dóttur hjónanna, er
var elzt dætra þeirra og gekk þeim fyrir
beina“.
Enn um leiðangurinn og sjálft skipið
I frásögn Jóns læknis, þar sem hann
telur upp leiðangursmenn, er I.C. Woods
titlaður skrifari leiðangursins, steinafræð-
ingur og ljósmyndari. Leiðangurinn tók
land á Djúpavogi 12. ágúst 1860. Varðveist
hefur ein mynd sem Woods tók af bæjar-
húsum á Djúpavogi og er hún birt hér. Inga
Lára Baldvinsdóttir, forstöðumaður ljós-
myndadeildar Þjóðminjasafnsins, birtir
hana í grein í Arbók Hins íslenska
fornleifafélags 1994 í greininni „Stereó-
skópmyndir á Islandi“.
Þessi mynd er stórmerk heimild frá
þeim tíma og er með elstu ljósmyndum
sem teknar voru á íslandi, að því er Halldór
J. Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður ljós-
myndadeildarinnar tjáir mér. Því miður
fyrir Austfirðinga á vorum dögum fór
Woods ekki landleiðina um Austur- og
Norðurland, eins og þeir leiðangursmenn
sem nefndir verða hér á eftir, heldur fór
hann með „Fox“ suður fyrir til Reykjavíkur
og var síra Amljótur í þeim hópi. Ella
hefði svo getað farið að teknar hefðu verið
myndir af Hallormsstaðabænum og fleir-
um, og jafnvel af síra Hjálmari Guðmunds-
syni, sem brátt kemur hér heldur betur við
sögu.
Þegar ég fór að grúska í þessu „Fox“-
máli í sumar, kom upp úr dúrnum, að ég
hafði lesið um þetta skip en hafði bara ekki
stálminnið hans Eiríks frá Dagverðargerði.
En nú tók ég fram úr hillu bók sem ég las
af áfergju um fermingaraldur. Hún heitir
Norður um höfeftir Sigurgeir Einarsson og
kom út í Reykjavík 1929. Þar er einn
lengsti kaflinn um leiðangur Sir John
Franklins til að fínna Norðvesturleiðina
milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Afdrif
þessa leiðangurs urðu þau að allir 129
fórust eftir ósegjanlegar píningar og
harðræði á eyju norður af meginlandi Kan-
ada. Það var leiðangurinn á gufuskipinu
„Fox“, undir stjórn sjóhetjunnar og mikil-
mennisins MacClintocks, sem tókst að
komast að því, hver urðu afdrif Sir Johns
og manna hans.
„Fox“ lagði af stað frá Skotlandi 1. júlí
1859: „... en MacClintock hélt heim 21.
sept 1859 og hafði nú fengið vissu fyrir
hinum sorglegu afdrifum Franklins og
manna hans. En hann sagði þær fréttir að
Franklin hefði fyrstur manna fundið Norð-
vesturleiðina“, skrifar Sigurgeir Einarsson.
Fyrir afrekið var MacClintock aðlaður, þar
eð stjóm hans á leiðangrinum var þakkað
að afdrif skipa John Franklins, „Erebus“ og
„Terror“ , upplýstust.
89