Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Side 112
Jón Pálsson var fæddur á Glúmsstöðum í
Fljótsdal 21. júní 1866. Foreldrar: Páll Jóns-
son frá Melum (Melaætt) og Hróðný Einars-
dóttir frá Brú (Jökulsætt). Er þeirra getið í
þættinum. Árið 1870 flytjast foreldrar Jóns að
Merki á Jökuldal, en þaðan varð ljölskyldan
að hörfa við öskufallið 1875 að Einarsstöðum
í Vopnafírði, en flutti þaðan á Dalinn aftur að
Amórsstöðum og þar átti Jón heima til 1893,
að hann fór vinnumaður að Möðmdal til
Stefáns Einarssonar móðurbróður síns. En frá
Möðmdal 1894 að Hálsi í Fnjóskadal til séra
Einars bróður síns. Jón varð fyrir alvarlegu
slysi 1890 eða 91, datt úr kláfnum yfír Jöklu
undan Parthúsum á Breiðumörkinni gegnt
Arnórsstöðum. Kom niður á ísskörina og hlaut slæman höfuðáverka. Borinn heim nær
dauða en lífí. Náði ekki fullri heilsu eftir þetta áfall (Mjófirðingasögur I. bindi, bls. 54).
Dráttarkaðlamir (hampur) vom mjög slakir og rann kláfurinn hratt frá landi en stöðvaðist
skyndilega þegar mótdrægt varð og við það hrökk Jón út úr kláfnum. Hann hafði heypoka
meðferðis og var talið að hann hefði e.t.v. bjargað lífí hans, varð undir honum er niður kom
og það hugsanlega eitthvað dregið úr fallinu (eftir frásögn Sigvarðar Péturssonar á Brú en
hann var fæddur og uppalinn á Gauksstöðum). Jón Kjartansson bústjóri Hróðnýjar á Am-
órsstöðum minnist á slysið í bréfum til Sigurðar Sigurðssonar fóstursonar síns er þá var
námspiltur hjá séra Einari Jónssyni ættfróða á Kirkjubæ:
Arnórsstöðum lS.febr. 1891
...Héðan erfátt aðfrétta, allt bærilegt og mikið betra ennfyrir skemmstu útleitfyrir. Jón
er á batavegi, enn hræddur er ég um að hann eigi lengi í því uns hann er alheill. Hann
hafði komið niður á höfuðið en þó ekki neitt brotnað ákoma engin, nema að neðri vörin
hafði höggvist í sundur, tennur höfðu brotnað. Vörin er að mestu gróin, bólgan horfin, enn
stríðugleiki í kjálkonum svo hann á bágt með að tyggja.
Arnórsstöðum 25. apríl 1891
...Nafni erfarinn að vefa en ekki er útlit á að hann verði fljótt jafngóður, bólgan getur
ekki farið úr kinnunum á honum alveg.
Annars er fátt kunnugt um æviferil Jóns eins og gengur og gerist um almúgamenn. En
þessi ritsmíð hans „Um Jökuldal“ ber gott vitni um þann „lífsins skóla“ sem hann ólst upp
í á Jökuldal, á seinni hluta síðustu aldar. Hvort Jón hafi fleira ritað er ókunnugt um, utan
hvað bróðursonur hans Vilhjálmur Einar Einarsson, segir hann hafa skrifað þátt um dráp
Gunnlaugs Ámasonar í Hrafnkelsdal 1749 og líka einhvern fróðleik um Þorsteins Jökuls-
ættar forfeður sína á Efra-Jökuldal, og virðist þá ekki átt við þessa grein í Oðni.
Páll Pálsson frá Aðalbóli