Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Side 164
Ársskýrslur
Snemma árs 1997 var ákveðið leita eftir samstarfi við ferðaþjónustubraut Menntaskólans á
Egilsstöðum til að vinna upplýsingar úr gestabókum safnsins og kanna þannig hvemig best væri að haga
starfseminni á safninu í framtíðinni. Það kom síðan í hlut Sigríðar Sigþórsdóttur að vinna verkið fyrir
Minjasafnið, undir stjóm Kristínar Bjargar Snæþórsdóttur. Verkefnið varð lokaverkefni Sigríðar af
ferðaþjónustubraut vorið 1997.
Úr skýrslu Sigríðar Sigþórsdóttur. Bls. 5.
Samkvæmt niðurstöðum Sigríðar skráðu samtals 4555 gestir sig í gestabók safnsins á nýliðnu ári.1
Gestimir komu frá 30 löndum, þar með talið íslandi. Önnur lönd era Danmörk, Noregur, Svíþjóð,
Færeyjar, Finnland, Þýskaland, Frakkland, England, Ítalía, Holland, Belgía, Spánn, Bandaríkin, Kanada,
Ástralía, Sviss, Austurríki, Pólland, Tékkland, Skotland, Tæland, Argentína, Puerto Rico, Japan, Indland,
írland, Grænland, ísrael og Nýja-Sjáland. í prósentum talið vora 92% gestanna frá Islandi eða
4193talsins.2 Næstir voru þjóðverjar 1,91% eða 87 gestir.
Flestir erlendu ferðamannanna komu á laugardögum á safnið en fimmtudagar vora vinsælastir meðal
íslendinga. Miðvikudagar vora óvinsælastir til skoðunarferða á safnið en ef á heildina er litið era annars
flestir dagar vikunnar nokkuð jafnir hvað gestakomur snertir. Það kom nokkuð á óvart þar sem boðið var
t.d. uppá hestakerraferðir á laugardögum. Yfir sumartímann komu flestir gestanna á sunnudögum, enda
unnu eldri borgarar þá við tóvinnu í baðstofunni frá Brekku. Munurinn á milli vikudaganna er þó
sáralítill.2
Úr skýrslu Sigríðar Sigþórsdóttur. Bls. 10.
Flestir sóttu safnið heim í júlímánuði árið 1996.1 28. viku náði gestafjöldinn hámarki en það er önnur
vikan í júlí. í þeirri viku komu samtals 422 gestir á safnið. Gestabókin sýndi einnig að aðalannatíminn
hefst í 22. viku og honum lýkur í 35. viku, en þetta tímabil nær nánast yfir sumaropnunartíma safnsins. I
fyrstu og síðustu vikunum vora fáir gestir á safninu.
Á opnunardegi sýningarinnar Að þreyja þorrann og góuna, 2. febrúar 1996, komu margir gestir í
safnahúsið. Þá komu 104 gestir í heimsókn en á aðeins einum öðram degi á árinu komu fleiri gestir á
safnið. Það var þann 13. júlí. Þá komu 142 gestir í heimsókn. Þennan dag komu einnig flestir erlendu
gestanna.5 Annars komu 286 gestir á sýningu safnsins á efri hæð Safnahússins, sem látin var standa uppi
fram að opnun aðalsýninga safnsins í lok maí.
Frá október til ársloka komu 326 gestir og munar hér mest um nemendur sem komu í safnakennsluna
en einnig var tekið á móti nokkrum hópum í leiðsögn. Um 100 manns komu á jólasýninguna 13. desember,
1996. Flest íslensk söfn era lokuð í septembermánuði ár hvert vegna sumarleyfa starfsmanna þeirra en
einnig vegna árlegrar ráðstefnu félagsmanna í Félagi íslenskra safnamanna. Þannig var það einnig á
Minjasafni Austurlands.
Það vakti athygli hversu margir Egilsstaðabúar komu og skoðuðu safnið á fyrsta opnunarári þess.
Samtals 1627 gestanna vora frá Egilsstöðum en samkvæmt íbúaskrá vora Egilsstaðabúar 1642 talsins,
þann 1. desember 1996. Þessi könnun, sem gerð var á gestabókum safnsins, leiddi einnig í ljós að mjög
margir gestanna voru af höfuðborgarsvæðinu en fæstir komu frá Vestfjörðum. Þeir vora svipað margir og
erlendu gestirnir.6
Sigríður reyndi að sjá út aldur gestanna, samkvæmt þjóðskrá, og komst að því að fullorðið fólk
heimsækir safnið mikið meira heim en yngra fólk. Hún miðaði við það að gestir 13 ára og yngri voru böm,
en fullorðnir voru 14 ára og eldri. Hlutfall gesta eftir aldri, samkvæmt staðli Sigríðar, er þannig að
162