Sagnir - 01.06.2016, Blaðsíða 188
Hreyfingin klofnaði árið 1934 þegar hófsamari meðlimir hennar fóru í samstarf
með Sjálfstæðisflokknum í kosningum. Harðlínumenn klufu sig þá frá ÞHI og
stofnuðu Flokk þjóðernissinna.22 Þeim flokki gekk illa í öllum kosningum sern
hann tók þátt í og hætti störfum árið 1938 eftir margra ára basl.23
Asgeir Guðmundsson segir að Þjóðernishreyfing Islendinga hafi fyrst og fremst
klofnað vegna togstreitu milli íhaldsmanna24 og fasista innan hreyfingarinnar, þ'a
hafi hún ekki verið hreinræktaður fasistaflokkur.25
Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur fullyrt að stofnendur ÞHÍ hafi ekki verið
nasistar heldur einungis þeir sem klufu sig frá flokknum vegna kosningabandalagsins
við Sjálfstæðisflokkinn.26 Rök Hannesar virðast byggja á því að ómögulegt sé að
vera bæði sjálfstæðismaður og fasisti. Það er fremur vafasamt að halda slíku fram
vegna þess að þeir töldu sjálfstæðisflokkinn skárri en aðra flokka.
„Mjög er þó villandi að mínum dómi að kalla alla þá, sem tóku þátt í þjóðernis-
sinnuðum samtökum á þessum árum, nasista. Andúð á kommúnisma og stæk
þjóðernisstefna virðist hafa sameinað þá, ekki sjúklegt gyðingahatur í anda Adolts
Hitlers. A þessum árum vissu menn ekki af gasklefunum.“27
Þótt vissulega sé rétt að á þeim árum sem ÞHI og Flokkur þjóðernissinna
störfuðu hafi helförin ekki verið hafin og verstu voðaverk nasismans höfðu ekkt
enn verið framin voru ofsóknir á hendur gyðingum og pólitískum andstæðingunt
stjórnvalda hafnar í Þýskalandi. Þegar fréttir af þessum ofsóknum bárust til íslands
höfnuðu þjóðernissinnar þeim sem lygum kommúnista eða jafnvel beinlínts
afsökuðu þær.28 Þótt gyðingahamr hafi ekki verið aðalatriði í stefnu þjóðernissinna
hafi mikil andúð á gyðingum ríkt meðal þeirra. Eins og áður hefur komið fram et
gyðingahatur ekki skilyrði fyrir fasisma þó að það eigi til að vera fylgifiskur hans-
Ofuráhersla á þjóðernisstefnu er mun mikilvægari en gyðingahatur þegar kemur að
því að ákvarða hvort mögulegt sé að skilgreina ÞHI sem fasíska hreyfingu.
Eini raunverulegi munurinn á hugmyndafræði róttæklinganna ogþeirra hófsamari
innan hreyfingarinnar virðist hafa verið afstaða þeirra til Sjálfstæðisflokksins. Hmir
róttækari töldu að Sjálfstæðisflokkurinn væri stéttaflokkur sem einungis þjónaði
hagsmunum auðugra atvinnurekenda.29 Sjálfstæðismenn voru líka sakaðir um að
hafa stolið slagorðinu „stétt með stétt“ frá ÞHÍ.30
Sú ímynd sem róttæklingarnir höfðu af sjálfstæðismönnum passar vel við þa
22 Þór Whitehead, Ófriður i aðsigi, bls. 83.
23 Ásgeir Guðmundsson, „Nazismi á Islandi“, bls. 60.
24 Ásgeir setur ekki fram neina beina skilgreiningu á íhaldsmönnum en hann virðist þó setja samasem merki
milli íhaldsmanna og sjálfstæðismanna.
25 Ásgeir Guðmundsson, „Nazismi á Islandi“, bls. 18.
26 Vef. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, „Nasistar, minningar og mannvonska“, Pressan,
www.pressan.is/ATH_efni/Lesa_ATH_efni/nasistar-minningar-ogmannvonska. 19. desember 2013.
27 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, „Islenskir nasistar“, DV, 29. september 1989, bls. 14.
28 „Þórshamarinn. Sameiningartákn norræna þjóða gegn marxisma“, ísland, 3.júní 1934, bls.4.
29 „Kosningaprédikun Sjálfstæðismanna“, Akœran, 6. júlí 1933, bls 4.
30 „Æskan og stjórnmálin“, ísland, 21. nóvember 1936, bls. 6.
188