Sagnir - 01.06.2016, Blaðsíða 239
Þ. Árnason undraðist
að Kaupþing en ekki
Landsbankinn hefði
fengið lán á ögur-
stundu. Þá ýjaði Lárus
Welding að því að
Seðlabankinn hefði
brugðist of skjótt við
með yfirtöku Glitnis
þegar bankinn hefði
enn haft nokkrar
vikur til að leysa úr
sínum málum.
Jóhatwa Sigurðardóttir umkringdfréttamönnum.
Ljósmjnd Tryggvi Aöalbjörnsson / RUV
Stjórnmálamenn í landsdómi
Sex fyrrverandi samstarfsmenn Geirs H. Haarde af þingi og úr ríkisstjórn mættu
fyrir landsdóm til að gefa skýrslu. Þar á meðal voru þrír sem Alþingi hafði kosið að
ákæra ekki þrátt fyrir dllögu þess efnis frá þar til bærri þingnefnd, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Björgvin
G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen sem var fjármálaráðherra
2005-2009.43
Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, var í stjórnarandstöðu fram til 1. febrúar 2009 en fjármálaráðherra
eftir það, fram að landsdómi. Hann sagðist afdráttarlaust hafa lengi talið stefna í
óefni. Hann sagði óskiljanlegt að menn hefðu ekki skynjað hættu frá og með árinu
2006 og gagnfyndi mótsagnakenndar skýrslur Seðlabankans þar sem væri samtímis
fjallað um sterkt bankakerfi og hættumerki.44
Jóhanna Sigurðardóttir, sem var forsætisráðherra þegar hún gaf skýrslu í
Lndsdómi, sagðist hafa lagt fram fyrirspurnir um stöðu efnahagsmála árið 2006
þegar hún, sitjandi í stjórnarandstöðu, varð vör hættu í efnahagsmálum. Svörin
hefðu gefið til kynna að allt væri í lagi. Þá sagði hún ámælisvert að Seðlabankinn hefði
látið frá sér yfirlýsingar í rimm sínum um að allt væri í lagi, þannig hefðu menn róast
þegar ekki var innistæða fyrir því.45 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagðist einnig hafa
haft áhyggjur af bankakerfinu í míníkrísunni 2006 en taldi að bankarnir hefðu látið
ser hana að kenningu verða. Hún hefði þó seinna orðið þess vör að upplýsingum
43 Vef. Málshöfðun gegn ráðherrum, ferill máls á vef Alþingis, 706. mál þingsályktunartillaga,
138. löggjafarþing 2009-2010. http://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum
/ferill/Pltg^löS&mnr^TOó. Sótt 28. mars 2015.
44 Vef. Steingrímur J. Sigfusson, skýrslugjöf í landsdómi, 13. mars 2012,
http://landsdómur.is/adalmedferd/nr/61. Sótt 6. janúar 2013.
45 Vef. Jóhanna Sigurðardótdr, skýrslugjöf í landsdómi, 9. mars 2012,
http://landsd0mur.is/adalmedferd/nr/43. Sótt 6. janúar 2013.
239