Sagnir - 01.06.2016, Side 208
formann sjálfstæðisflokksins.30 Það var því mat margra að Gunnar hefði átt hlut 1
þeirri ákvörðun að veita Gervasoni ferðamannaleyfið svokaflaða.31
„Ferðamaðurinn“ Gervasoni bíður niðurstöðu
Þegar fyrir lá að Gervasoni fengi að dveljast á Islandi til skamms tíma var sótt urn
atvinnuleyfi fyrir hann. Það var í höndum embættismanna í félagsmálaráðuneytinu,
sem þá heyrði undir Svavar Gestsson, formann Alþýðubandalagsins, að gefa út
leyfið. Svo vfldi dl að vinnuveitandi Gervasonis, Halldór Backman húsameistari, var
faðir aðstoðarmanns félagsmálaráðherra, Arnmundar S. Backman, og var hann við
störf við viðhald á húsnæðinu sem hýsti bæði félagsmála- og dómsmálaráðuneytið.
Embættismenn í dómsmálaráðuneytinu fltu svo á að atvinnuleyfið væri ógflt'
Embættismenn í ráðuneytinu fltu það sem storkun að Gervasoni ynni fyrir utan
dómsmálaráðuneytið við að gera við glugga á ráðuneytinu.32 Hafldór kvaðst ekki hafa
hugsað út í það þegar hann fékk Gervasoni verkefnið og beindi félagsmálaráðherra
því tfl hans að senda Gervasoni í annað verkefni.33
Dómsmálaráðuneytið hélt sínu striki og vann áfram við að afla upplýsinga
um fortíð Gervasonis. Spurningum var á ný beint til sendiráðsins í París og
voru nákvæmari en þær sem áður hafði ekki fengist svör við. Nú var m.a. leitað
eftir ákvæðum um refsingar við broti flðhlaupa. Ef marka má svör franska
utanríkisráðuneytisins, sem byggði á samtafl við starfsmann franska herdómstólsins,
gæti Gervasoni fengið dóminn felldan niður að hluta tfl eða að fuflu kysi hann að
gegna herþjónustu og væri máflnu þar með lokið.34 Þá kom fram í samtafl við
lögregluna í Danmörku að ekki væri heimild til framselja menn sem hefðu gerst
brotlegir við hernaðarlög.35
Ragnar Aðalsteinsson hélt einnig áfram að þrýsta á dómsmálaráðuneytið og
krafðist þess að ákvörðun ráðherra frá í september yrði breytt.36 Ragnar lagði mikið
kapp á að finna sambærfleg mál erlendis frá og vísaði í ýmis fræðirit í því sambandi-
Gróf hann upp viðlíka mál í Noregi, þar sem portúgalskur liðhlaupi sem neitaði
að taka þátt í nýlendustríði fékk dvalarleyfi, og í Þýskalandi (sem hann tók sem
30 Guðni Th Jóhannesson, GunnarThoroddsen. Ævisaga, bls. 445-505. Valdabarátta Gunnars og Geirs er rakin
ítarlega, sérstaklega það sem fór fram á bak við tjöldin, og varpar ljósi á hversu miklu þessi ríkisstjórn
hefur skipt Gunnar Thoroddsen.
31 Viðtal. Höfundur við Ólafur W. Stefánsson, 18. febrúar 2013
32 Viðtal. Höfundur við Ólaf Walter Stefánsson, 18. febrúar 2013. Sjá Einnig lýsingu Sturlu Böðvarssonar-
Sturla Böðvarsson, „Svavar Gestsson og Patrick Gervasoni“. í viðtali við Evu Maríu Jónsdóttur 2005 gaf
Friðjón Þórðarson þó ekki í skyn að honum hafi staðið ógn af Gervasoni.
33 Viðtal. Höfundur við Svavar Gestsson, 13. mars 2013.
34 ÞÍ. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. 2002-B/393. Bréf sendiráðs íslands í París til utanríkisráðuneytis,
10. október 1980.
35 ÞÍ. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. 2002-B/393. Bréf Henning Dahlfelt til Sigurjóns Sigurðssonar,
11. nóvember, 1980. Sjá einnig 4 gr. danskra laga um framsal sakamanna (nr. 249/1967).
36 ÞÍ. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. 2002-B/393. Bréf Ragnars Aðalsteinssonar til dómsmálaráðherra,
14. nóvember 1980, auk greinargerðar, 24, október 1980.
, 208