Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 60
SKAGFIRÐINGABÓK
lega af. Þau voru samhent og dugleg
að bjarga sér og hagnýta vel það sem
landið gaf af sér. Þau eignuðust fimm
börn til viðbótar meðan þau bjuggu á
Skógarhöfða, en urðu fyrir miklu áfalli
við að missa þar tvo syni, annan
nýfæddan en hinn var Árni, sem lést
15 ára, og kom með þeim frá Íslandi
þá þriggja ára gamall eins og áður seg
ir.
Eyjan Mikley var landsvæði sem
Íslendingar fengu úthlutað til búsetu
Hún liggur norðaustur með strönd
Winnipegvatns og er 18 mílur á lengd
og 6 mílur þar sem hún er breiðust.
Strax í byrjun landnáms Íslendinga í
Kanada var þeim veittur einkaréttur
til landnáms á þessu svæði og inn
flytjendur af öðru þjóðerni útlokaðir.
Eyjan var því eingöngu byggð Íslend
ingum og afkomendum þeirra þangað
til á seinni hluta síðustu aldar, að
byggð in lagðist af m.a. vegna reglna
um takmörkun veiða í vatninu. Nú
orðið er eyjan friðlýst en ýmsar minjar
eru vel varðveittar sem vitna um bú
setu fólksins sem bjó þar. Flestir höfðu
lífsviðurværi af veiðum í Winni peg
vatni allan ársins hring og eru til
marg ar frásagnir af veiðiferðum mann a
einkum veiðum niður um ísinn á vet
urna. Fyrir nokkrum árum var gerð ur
vegur á uppfyllingu út í eyjuna Heklu
eins og hún heitir nú, og er hún nú
orðin vinsæll ferðamannastaður á
sumrin.
Árið 1898 var svo komið fyrir Gísla
og Dýrunni að eigi var lengur vært á
Skógarhöfða vegna vatnavaxta. Þau
áttu þá ekki annars úrkosta en að flytj a
úr eyjunni eftir 14 ára búskap, með
börnin sín fimm til fastalandsins á
svæði sem hét Ísafoldarbyggð. Festu
þau sér land þar og settust að á býli
sem hét Víðirhóll. Þar höfðu áður búið
íslensk hjón sem hétu Jón og Guðleif
Hornfjörð, en þau voru nýlega flutt
þaðan og því var býlið laust. Byggðin
lá meðfram vesturströnd Winnipeg
vatns, rétt norðan við Íslendingafljót.
Fjölskyldan var þar betur sett, bæði
hvað varðaði skóla fyrir börnin og
einn ig var byggðin þéttari en á Heklu
og auðveldara að eiga meiri samskipti
Börn Árna og Sigríðar.
Frá vinstri: Bobo,
Þórunn (fyrir aftan),
Sigurrós, Dýrunn og
Ingunn.
60