Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 133
ÆSKUMINNINGAR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI
Þá er Gunnar eða Gunnsi Garðars,
myndarstrákur og vel hraustur. Hann
var jafngamall Óskari bróður. Hann
fór mjög ungur að stunda sjómennsku.
Man ég eftir því að við fórum nokkr
um sinnum á færi saman á árabát.
Fengum við stundum góðan afla sem
við lögðum inn í frystihúsið. Þá vor
um við saman á síldarbáti sumarið
1948 eins og getið er um hér að fram
an. Gunnar fór ungur suður með sjó
og settist að í Garðinum. Þar hefur
hann stundað sjómennsku, mest á eig
in bát um, og honum hefur gengið vel
í lífinu.
Fjórða í röðinni er Elínborg eða
Bodda Garðars. Hún var jafnaldra
mín, prúð og ágætis stúlka. Yngst var
svo (Steinunn) Björk eða Bjagga. Hún
var ansi fyrirferðarmikil í uppvexti og
nánast eins og strákur. Ég hef ekkert
frétt af henni eftir að hún varð full
orðin. En hún varð bráðkvödd fyrir
allmörgum árum (2000).
Þorsteinn Sigurðsson og fjölskylda
Næst nefni ég Þorstein Sigurðsson
(Steina mótorista) og konu hans Ingi
björgu Konráðsdóttur. Þorsteinn var
fæddur á Móskógum í Fljótum en
fluttist frá Siglufirði til Sauðárkróks
kornungur. Hann var meðalmaður á
hæð, dökkhærður og brúnamikill.
Hann var myndarlegur maður. Var
við sjóróðra með ýmsum formönnum.
Hann sá um vélgæslu og fékk því
viðurnefnið mótoristi eða Steini
mótor isti. Síðar meir sá hann um að
keyra rafmagnsvélar fyrir rafveitu
Sauðárkróks í mörg ár. Ég minnist
þess þegar ég var að læra í bakaríinu
hjá Guðjóni, að Steini hringdi stund
um í hann og bað hann að slökkva á
ofninum því þá var rafmagnið af svo
skornum skammti. Steini hafði mjög
góða söngrödd (tenór). Söng hann
bæði í karlakórnum og kirkjukórnum.
Þá var hann ágætur leikari, tók þátt í
mörgum uppfærslum hjá leikfélaginu.
Mér er minnisstætt að eitt sinn á að
fangadag gaf hann öllum krökkunum
í Höepfnershúsinu epli. Það var mikið
vinarbragð og gleymist ekki. Ingi
björ g kona hans var af hinni þekktu
Konráðsætt sem annáluð var og er
fyrir lagvísi og sönghæfni. Ýmsir kall a
þessa ætt Harmonikkuættina sökum
þess hve margir harmonikkuspilarar
eru í henni. Þau Steini og Ingibjörg
áttu sex börn.
Elst þeirra var (Guðlaug) Rósa,
myndarleg stúlka og einstaklega al
mennileg. Það sem mér er minni
Þorsteinn Sigurðsson, jafnan
kallaður Steini mótoristi, og Ingibjörg
Konráðs dóttir, kona hans.
133