Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 141
ÆSKUMINNINGAR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI
Grikkur
Eins og kom fram hér að framan voru
húsakynni í Höepfner afar bágborin.
Útikamar var norðan við húsið og þar
var óþefurinn slíkur að maður notaði
hann helst ekki. En það var kamar á
bryggjunni rétt sunnan við húsið og
fórum við oft á hann ef ekki var vit
laust veður. Eitt sinn er pabbi fór á
þennan kamar voru þeir Fúsi Sig. og
Sveinn Dýllu, þ.e. Sigfús Sigurðsson
og Sveinn Guðmundsson kenndur við
kjötbúðina, að vinna í ytri búðinni hjá
Kaupfélaginu. Þegar þeir töldu sig
vissa um að hann væri sestur skutu
þeir af riffli efst í kamarinn. Hljóp
hann þá út af kamrinum með allt
niður um sig. Var þá mikið hlegið.
Grípið barnið
Þegar Ásta systir mín var lítil, trúlega
á öðru ári, áttum við heima á efri
hæðinni í Höepfner, að ofanverðu. Var
hún eitt sinn að príla ofan á pabba sín
um við gluggann. Vill þá ekki betur
til en svo að hún dettur út um glugg
ann í urðina þar fyrir neðan. Svavar
Guðmundsson var fyrir utan bakaríið
og sá þetta gerast og hrópaði: „Grípið
barnið, grípið barnið!“ En það var
nátt úrlega enginn til að grípa hana.
Farið var í ofboði niður á spítala. Hún
fékk mjög ljótt sár á ennið og ber þess
merki æ síðan.
Hersetan á Sauðárkróki
Árið 1940 var Ísland hernumið af
Bret um. Þá var ég sjö ára. Man ég vel
eftir þegar Bretarnir komu til
Sauðárkróks þá um sumarið. Þeir tóku
herskildi barnaskólann, góðtemplara
húsið, Hótel Tindastól, samkomu
húsið Bifröst og Bræðrabúðina. Komu
þeir sér fyrir í öllu m þessum húsum.
Hermennirnir, sem komu á Krókinn
þetta sumar, munu hafa verið um eitt
hundrað. Við krakkarnir vorum marg
ir að sniglast í kringum þá. Þetta
sumar var afar blíðviðrasamt og möt
uðust hermenn irnir oft úti við. Þeir
keyptu skyr í Mjólkursamlaginu en
Hermenn á
Sauðárkróki.
141