Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 196
SKAGFIRÐINGABÓK
en Guðmundur gaf safninu sinn hlut.
[31]
Aðfaranótt 8. ágúst 2006 lagði
Gunnar svo af stað á gamalli Bens
vörubifreið, sem hann notar við að
drætti fyrir safnið. Á veitingastaðnum
Baulu í Borgarfirði beið Páll bróðir
hans eftir honum, sem kom frá Reykja
vík. Þeir bræður héldu svo för sinni
áfram afar glaðir og ánægðir yfir vænt
an legum farmi, sem beið þeirra í
Hvammi. Þegar þangað kom stóð
drottningin á stalli, sem mátti keyra
hana af og inn á pallinn á Bensanum
og halda síðan heim eftir að samning
ur hafði verið undirritaður og vottfest
ur. Samningur þessi er svohljóðandi:
Guðmundur Guðlaugsson, kt.
1106624919, og Torfi Guðlaugsson,
kt. 1203655419, hér nefndir selj
end ur og Gunnar Þórðarson, kt.
0412484169, hér nefndur kaupandi,
gera með sér svofelldan Samning
vegn a sölu á jarðýtunni International
TD 9, árgerð 1943, með framleiðslu
númerið TDCB 7315 T 7 BJ. Jarð
ýtan er seld með eftirfarandi skilmál
um, sem kaupandi fellst á.
1. Söluverð jarðýtunnar er kr.
225.000.
2. Jarðýta þessi var seld Hólaskóla í
Hjaltadal fljótlega eftir að hún
kom til landsins. Hún hefur því
söfnunargildi fyrir staðinn og er
196
Hólaýtan komin á Samgönguminjasafnið í Stóragerði. Bræðurnir Gunnar og Páll standa
stoltir við gripinn. Gunnar hægra megin.
Eigandi: Gunnar Kr. Þórðarson, Stóragerði.