Breiðfirðingur - 01.04.1950, Side 30

Breiðfirðingur - 01.04.1950, Side 30
28 BREIÐFIRÐINGUB sem lágu þar ofan við flæðarmál á klettunum, þá glefsar hún í sig nokkur melstrá, og dettur samstundis niður steindauð. Mér þótti þetta ills viti, en þótt komin væri dagur að kvöldi og veður- útlit Ijótt, lét ég engar hugargrillur á mig fá, enda treysti ég for- manninum að fullu. Með í þessari ferð voru auk mín og Sveinbjarnar þau Niels Gíslason frá Bíldsey, Septemborg Gunnlaugsdóttir og Svanborg Gestsdóttir. Niels hafði þá nokkru áður, lent í sinni alkunnu Barðarstrandarvillu. Aður en lagt var frá landi, var dauðu kind- inni kastað út í bátinn. Var þá komið norðaustan stórviðri, og kafald að smábyrgja alla útsýn vestur á flóann. Enginn talaði orð. Hver og einn var við sitt verk. Níels var við „pikkfalinn“, sem þó var fastur, fóstursysturnar til taks, ef á austurtrogi þyrfti að halda, en farþeginn gerðalítill aftur í skut hjá fonnanni, enda þá lítið sjóvanur, nema í smágutli um Ballarárvíkurnar. Þegar komið var kippkorn út fyrir Miðaftansker, sást livorki til lands eða fjalla, en áfram er haldið. Enginn talar orð, þar til komið er alllangt út á flóann, að Niels hefur upp raustina og segir, að þetta útlit sé alveg eins og þegar hann villtist forðum á Barðaströnd. Ég hafði áður heyrt um þessa hrakningsferð Níelsar, og hefði heldur kosið að hann hefði þagað, en Svein- björn tautaði þurrlega. „Ætli að við séum ekki nálægt réttri leið e,nnþá“. — Báturinn þaut áfram og alltaf sauð í keipum. — Enginn hreyfir umræðum lengi, þar til Sveinbjörn segir, að nú ætti maður fram af þessu að fara að eygja eyjarnar. — Bétt á eftir komum við upp undir Gjögrið á Hvanneyjum. Var þetta laglega haldið leið yfir allan flóann, þar sem aldrei sást til lands eða eyja. — Það er mér óhætt að fullyrða, að annar áttaviti var ekki um borð, en næmleiki og ratvísi formannsins. Er við komum í Bjarneyjar, var orðið það hásjávað, að haldið var austan Höfða, út sundin milli Búðeyjar og Heima- eyjar. Með mig var lent í Bæjarvörinni. — Ég þakkaði Sveinbirni fyrir farið, og var það allt, sem hann fékk fyrir þann farþega. Þannig var það með Sveinbjörn og hans ágætu konu, að þau gerðu flestum greiða án nokkurs endurgjalds. — Ég var ráðinn í skiprúm hjá Bjarna Bjarnasyni. Hásetar hans,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.