Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Side 44
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
44 TMM 2010 · 2
hana er að finna í þjóðsögum
og goðsögum, bókmenntum og
kvikmyndum og ímynd hennar
er síbreytileg, ekki aðeins innan
þessara ólíku frásagna, heldur
einnig á ólíkum tímum.8
Vampýran hefur verið vin sæl-
asta skrýmsli hrollvekjunnar í
næstum tvær aldir. Rithöfundar
og kvikmyndagerðarmenn virðast
finna endalausa nýja möguleika til
að kanna vampýruna og nota hana
sem tákn fyrir helstu átakamál
mannkynsins, allt frá ódauðleika
til hryllilegrar hrörnunar, erótíkur
til eilífrar ástar. Fjölbreytileiki
vampýrunnar endurspeglar marg-
röddun hrollvekjunnar, saman
sýna þær framá að því fer fjarri að
hryllingurinn sé eitthvað einfalt
mál.
Viðtal við vampýru
Eins og fram hefur komið er tvíræðni gagnvart óvættareðli vampýrunnar
hluti af sögu hennar, en þó er það ekki fyrr en á sjöunda áratugnum sem
verulega var farið að takast á við möguleikana sem í líki hennar búa.
Árið 1961 skrifaði vísindaskáldsagnahöfundurinn Theodore Sturgeon
nóvelluna Some of Your Blood, eða Dálítið af blóðinu þínu, sem fjallaði
um ungan mann sem kannski er vampýra, allavega ástundar hann
blóðdrykkju.9 Snemma á áttunda áratugnum (1972) hóf göngu sína
myndasagan Tomb of Dracula eða Grafhvelfing Drakúla, en þar birtist
greifinn endurfæddur, enn á ný, en þrátt fyrir að illska hans sé mikil þá
bregður svo við að hann á líka til nokkuð hetjulega takta. Vampýrubaninn
Blade birtist fyrst í þessum sögum, en hann er einmitt hálf-vampýrískur
og má telja líklegt að persóna hans sé ein fyrsta tilraunin til að skilja á
milli ‘góðra’ og ‘vondra’ vampýra, en nýjasta vampýrubylgjan gerir mjög
út á slíka aðgreiningu.
Það er þó ekki fyrr en með útgáfu fyrstu vampýrusögu Anne Rice,
Interview with the Vampire eða Viðtal við vampýru, árið 1976, sem straum-
Sjónvarpsþættirnir True Blood eru
byggðir á sögu Charlaine Harris en
rekja rót til mynda Bela Lugosi.