Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 50
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
50 TMM 2010 · 2
í staðinn blómstrar rómantíkin í ástarævintýrum kvenhetjanna með
vampýrum og öðrum óvættum – jafnvel mönnum. Á vissan hátt virkar
þetta þriðja tímabil einnig sem einskonar brú yfir í fjórða skeiðið, sem
hefst á nýrri (þús)öld, með skáldsögum Harris og Meyers.23
Það er draumur að dansa við vampýru
Það sem skilur þessa nýjustu bylgju einnig frá þeirri síðustu er samruninn
við aðra bókmenntalega öldu sem gengur stundum undir nafninu
‘skvísusögur’ (chick lit), en frægasta holdgerfing þeirra er að sjálfsögðu
hin ákaflega vinsæla Austen-innblásna skáldsaga Helen Fielding, Dag-
bók Bridget Jones (1996).24 Vissulega birtist Bridget á síðustu öld og er
samtíðarkona Buffy (sem reyndar ber ýmis merki skvísusagna), en sú
bókmenntalega bylgja sem sagan hleypti af stað fór þó ekki verulega að
blómstra fyrr en á nýju öldinni. En það eru ekki bara skvísusögurnar
sem hafa breytt yfirbragði vampýrunnar, það er líka hægt að greina
áhrif frá Harry Potter-bókunum, en sú fyrsta kom einmitt út sama
ár og Buffy-þættirnir hófu göngu sína, 1997. Á sama hátt og Bridget
Jones sló nýjan tón í bókmenntum kvenna (og bókum fyrir konur)
þá olli Harry Potter straumhvörfum í skrifum fyrir ungt fólk. Þessi
tvíþættu áhrif má greinilega sjá í Ljósaskiptunum og Sookie Stackhouse-
seríunni. Ljósaskiptin eru greinilega Harry Potterísk (ný stelpa í nýjum
skóla uppgötvar að raunveruleikinn er ekki sá sem hún hélt), með
skvísuívafi (Meyer er yfirlýstur Jane Austen aðdáandi), meðan Sookie
sver sig meira í ætt við skvísubókmenntirnar, enda er söguhetjan öllu
eldri (nokkuð yfir tvítugt). Vampýran hefur alltaf verið vinsæl meðal
unglinga og kvenna og því ekki að undra að hún hafi öðlast athvarf í
bókmenntum handa þessum lesendahópum. Tengslin við unglinga-
menningu voru auðvitað þegar komin fram í Buffy, og á undan henni í
The Lost Boys (1987), eða Týndu strákunum hans Joels Schumachers og
fleiri unglingahrollvekjum, en eins og áður segir greinir nýjasta bylgja
unglingavampýrusagna sig frá þessum verkum með ofuráherslu sinni á
ástir og rómantík – á kostnað hryllings.
Og eins og áður hefur komið fram mætti að einhverju leyti halda
því fram að hér sé vampýran loksins komin hringinn, aftur til róman-
tískra róta sinna og tengsla við konuna sem ímynd feigðar og ódauð-
legrar ástar.25 En hver er þessi nýja ímynd nákvæmlega? Skoðum aðeins
nokkur dæmi um nýlegar og vinsælar vampýrur.