Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 68
N a j a M a r i e A i d t
68 TMM 2010 · 2
hundleiðast. Hún gekk fram til að hella upp á kaffi. Mýbitið plagaði
hann verulega núna. Hann þreifaði á því og fann fyrir stærðarinnar
kúlu. Það hafði greinilega ekki nægt að hreinsa það. Pede reyndi að róa
sig. Síðan brast hann skyndilega í grát. Charlotta kom fram í gættina,
ranghvolfdi augunum og hristi höfuðið, hún var að þurrka af grænni
glerskál. Hann lofaði Pede að reyna að aðstoða hann við að finna betri
íbúð. Kannski vissu þeir á skrifstofunni um eitthvað. Hann lofaði að
hringja. Pede snýtti sér í servíettu. Þá komu krakkarnir stormandi inn,
algjörlega útötuð í grasi og drullu.
Hann vaknaði um nóttina og leið herfilega. Hann fann fyrir slætti
í rasskinninni. Hann vakti Charlottu sem fór nauðbeygð á fætur og
kveikti ljósið. Hún sá að það var komin ígerð í bóluna sem var hörð og
rauð. Þetta er víst að breytast í kýli, sagði hún og geispaði. Þá fékk hana
hana til að taka nál, renna oddinum í gegnum gaslogann og stinga á
kýlið. Hún kreisti vilsuna út á meðan hún hrópaði „oj“ og „hver and-
skotinn!“ Hann beit saman tönnunum. Hún sagði að hann gæti sjálfur
náð sér í verkjastillandi frammi á baði og slökkti ljósið. Daginn eftir
gerðu þau hreint og læstu húsinu. Hann bar töskurnar út í bíl og lokaði
farangursrýminu. Svartþröstur söng sínar trillur í háu björkinni við
innkeyrsluna og hann sá fjöldann allan af vetrargosum sem ljómuðu
snjóhvítir á svartri, rakri jörðinni. Áður óþekkt tilfinning saknaðar,
tómleika, angurværðar – hann átti erfitt með að henda reiður á því –
helltist yfir hann. En því fylgdi líka hamingjukennd. Svartþrösturinn,
blómin, sólin sem þegar var lágt á gráum himninum, hálffalin á bak
við hvikul skýin. Þá kom Charlotta út og byrjaði að tala um að hann
ætti að koma því í verk að fá mann til að leggja flottu hleðslusteinana
á veröndina, sem hún hafði pantað fyrir hann frá Ítalíu. Hann myndi
njóta hússins miklu betur í sumar ef það skartaði almennilegri verönd.
Sagði hún. Þegar hann kom heim biðu hans skilaboð frá móður þeirra.
Hún hefði svo gjarnan viljað hitta þau um páskana, en kannski í næstu
viku? Hann eyddi skilaboðunum og setti Red Hot Chili Peppers á, hann
hækkaði í græjunum og opnaði dyrnar út á þakveröndina. Gullkúpull-
inn á Frelsisturninum lýsti mattur í rökkrinu. Hann fann fyrir púls-
slætti í rasskinninni. Það líður hjá. Sagði hann við sjálfan sig, þetta
er ekkert alvarlegt, það líður bráðum hjá. Hann fór í bað og skipti um
föt, fékk sér nokkra öllara niðri á kránni og komst smám saman í gott
stuð, hann spjallaði við barþjóninn, við nokkra peyja sem störfuðu hjá
samkeppnisaðila, og þá sá hann hvar Heidi kom inn um dyrnar, vel til-
höfð og í samfloti með þybbinni vinkonu, það hentaði honum ágætlega,