Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Page 102
102 TMM 2010 · 2
Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir
Um Öskubusku
Þegar kona nokkur hringdi og bað mig að taka ævintýri í nefið sagðist
ég vera dama í dag, ekki geta valið, ævintýrið mundi finna mig. Stundu
síðar þurfti ég niður í Hákot og viti menn, á gangstéttinni utan við húsið
lá skærbleikur háhælaður Barbie-dúkkuskór við tröllatá mína á stétt-
inni. Ekki er undan að víkjast þegar til-viljunin – það sem vill [verða]
til – talar svo skýrt. Öskubuska vill til vera. Ég hljóp út, núna rétt í þessu
í rifunni milli lína og sá að skórinn – sem ég skildi eftir handa telpunni
sem týndi – er horfinn. Dúkkuprinsinn fann hann og nú er Amor hjá
þeim. Þau eru sundurstungin og skotin, Barbie og Ken. Alsæl og tryllt.
Megi lukkan sem lengst lúra hjá þeim.
Sagan um Öskubusku er í stuttu máli fegurðarsamkeppni og
verðlaunin þau að verða spúsa valdamanns. Löngum hefur lífið þótt
leika við slíkar stúlkur, enda kallast þessar reynslulausu eftirsóttu lág-
stéttarperlur sem alltaf hafa skinið í mannsorpinu neðan við æðstu
yfirstétt: fegurðardrottningar. Zarinn í Rússlandi lét færa sér fallegustu
telpur keisaradæmisins. Já, fjölkvæni gildir víðast utan hins kristna
heims og kóngar og valdamenn hafa þar til bara alveg nýlega haft
einkaleyfi á að vaða í fögru, undirgefnu og þægu holdi. Auk þess sem
það er draumur sérhvers manns. Má í þessu sambandi minna á hreinu
meyjarnar í himnaríki Islams, kvennabúr soldáns og keisarans í Kína,
í Afríku og bara alls staðar. Vöðvinn varð ríkur og fékk að ráða og tók
sér ljúft hold að vild.
Draumur sérhvers manns sögðum við. Konur eru menn, hvernig snýr
Öskubuskudraumurinn þá að konum? Með öfugum formerkjum …?
Buskusagan geymir drauminn um að renna á fegurðinni upp
stétta stigann í trygga ævilanga höfn. Kvennamegin er viðskiptafræði
ástarinnar skýr, þar gildir þokki, gæði, léttur fótur, laglegur ökli, kyssi-
legur munnur, viðráðanleg stærð … og svo framvegis. Sagan af Ösku-
busku verður skemmtilega skökk og skæld ef skipt er um kyn. Skrítnar