Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Page 128
D ó m a r u m b æ k u r 128 TMM 2010 · 2 III Þótt hér hafi verið stiklað á stóru í ilmskýrslu Oddnýjar Eirar gefur það í raun afar takmarkaða mynd af þeim heimi sem býr í bókinni. Í ritdómi í þættinum Víðsjá á Rás 1 kallaði Auður Aðalsteinsdóttir verkið „sálgreiningarævintýri“ sem er vel til fundið og einnig mætti lýsa því sem óði til bókmenntaarfs, heim- speki og fleiri fræðigreina sem höfundur hefur lagt stund á. Höfundi er tíðrætt um „lykla“ í frásögn sinni, hún trúir því að „orð geti læknað“ (203) og „ekkert er eins læknandi og falleg orð annarra sem maður heyrir“ (204). Á einu bóka- safninu sem hún heimsækir segir hún: „Hér inni eru einhvers staðar lykilrit sem opna manni leið inn að blæðandi hjarta tímans“ (177) og á öðrum stað segir ein af sögupersónunum við hana: „Ég verð að viðurkenna að við erum enn ekki búin að finna lykilinn að þínum vanda en þó er ég ekki frá því að við séum með búnt af litlum lyklum!“ (221). Mörg lykilrit mætti nefna sem Oddný Eir notar sem nokkurs konar skapalón fyrir verk sitt, til að mynda ólík verk á borð við Inferno eftir August Strindberg, Árstíð í helvíti eftir Arthur Rimbaud og Lísu í Undralandi eftir Lewis Carroll; hælisvist, gullgerðarlist (eða sálræn eimun) og ferðir til undralanda mynda baksvið atburða frásagnarinnar og þeirrar hugmyndalegu umræðu sem stöðugt er í gangi. Annar lykill eru hin fjölbreytilegu kynjafræði samtímans þar sem táknrænar skírskotanir til afhöfðunar og geldingar, möguleika og takmarkana hins karllæga og hins kvenlæga í ríkjandi samfélagsmunstri er velt upp og bylt á ýmsan máta og oft ísmeygilegan. Þá mætti nefna áleitnar hugleiðingar um lyfjaiðnað samtímans, lækniskúnstir og óhefðbundnar aðferðir á því sviði: „Stríðið við lyfjafyrir- tækin er rétt að byrja og eins gott að hermennirnir séu hraustir, dýralæknar, uglur og hérar, eldmenn, ljósmæður og nef“ (223). Víða í texta Oddnýjar Eirar er að finna beinar tilvitnanir til íslenskra og erlendra bókmennta og heim- spekitexta. Slíkar tilvitnanir eru skáletraðar og aftast í bókinni er skrá yfir tilvitnanir (blaðsíðutöl eru þó ekki rétt í öllum tilvikum, hafa líklega raskast í vinnslu handritsins). Eins og til er ætlast víkka slíkar beinar og óbeinar tilvitn- anir í önnur verk út merkingarsvið bókarinnar og senda lesanda á vit skemmti- legra krókaleiða. Oddný Eir gaf út sína fyrstu bók, Opnun kryppunnar, árið 2004. Í ritdómi um þá bók líkti ég aðferð hennar við leik: Leikur er kannski besta orðið til að lýsa frásagnaraðferð Oddnýjar Eirar; hún leikur sér í textanum, leikur sér að tungumálinu, hendir hugmyndum á loft, umsnýr þeim og sýnir okkur ný brögð. Og með í leiknum er alltaf húmor, textinn er víða bráð- fyndinn og sprúðlandi fjörugur. En alvaran er einnig í spilinu, oft framreidd með íróníu sem hittir í mark. Því Oddný Eir er ekki „bara að leika sér,“ henni liggur ýmis- legt á hjarta og hún hefur ástríðufullan áhuga á því sem fer (og er) á milli manna; á mannlífinu í öllum sínum fjölbreytileika. (Morgunblaðið, 16. maí 2004). Sömu umsögn get ég gefið Heim til míns hjarta; hér er verið að „leika sér“ með sjálfsævisagnaformið á afar eftirtektarverðan hátt og höfundur hefur treyst tök
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.