Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 44
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
44 TMM 2017 · 2
Af hvernig hljóðum hrífstu?
Fuglasöng. Söngli í börnum á meðan þau leika sér. Hversdagshljóðum.
Mm, hvaða hljóð þolir þú ekki?
Ískur. Og þegar bílinn minn sem gleypir olíu pípir um leið og olíuljósið
kviknar. Hljóð sem segja að eitthvað sé bilað í tækjum.
Við hvaða annað starf myndir þú kjósa að vinna?
Það gæti verið gaman að vinna á leikskóla, algjört ævintýri. Ég gæti líka
hugsað mér að vinna aftur sem leiðsögumaður – þar fær sögukonan útrás.
Og alls ekki vilja vinna við?
Sérhæft ferkantað skrifstofustarf, aðstoðarmaður lögfræðings en kannski
er það skemmtilegt – hvað veit ég? Ég hef unnið alls konar störf og þau hafa
verið flest bæði skemmtileg og leiðinleg. Það kom mér svo á óvart þegar ég
vann á Einkaleyfastofunni hér um árið hvað mér þótti lögfræðin brjálæðis-
lega spennandi, hún snýst um átök og spennu og skilgreiningar og sam-
komulag um ramma og túlkanir. Lögfræðin og aðrar greinar sem okkur
finnst að fáist við raunveruleikann eru í raun meira fljótandi en maður gæti
haldið, það að eitthvað sé í föstum skorðum er yfirleitt blekking. En núna er
ég komin út fyrir efnið, fljótandi utan rammans.
Endilega farðu út fyrir efnið. Hver er uppáhaldsliturinn þinn og -blóm?
Upppáhaldsliturinn breytist sífellt. Hefur verið blár og fjólublár og vín-
rauði liturinn dúkkar upp öðru hvoru. Umfeðmingur heitir uppáhalds-
blómið – skemmtilegt orð – sem við bróðir minn kölluðum sykurblóm og
átum kjarnann úr. Ég þarf að smakka öll blóm. Kerfillinn er líka í uppáhaldi
og það er kerfill útum alla borg – maður getur sótt sér lakkrís útum allt!
Uppáhaldsfugl?
Himbrimi.
***
Hvernig barn varstu? Þú varst óþekk heyri ég af stelisögunum og varst líka
stillt.
Ég var mjög óþekk þangað til ég varð átta, níu ára þá varð ég stillt og prúð.
Ég á frænda sem ég var stundum hjá þegar ég var þriggja, fjögurra ára – hann
er svolítið eldri en ég – um daginn hitti ég hann og hann sagði mér ég hefði
verið brjálað barn og rifið kjaft. Við höfum öll elementin í okkur en maður
þarf að hafa einhverja stjórn á sjálfum á sér. Skáldskapurinn krefst óþekktar
við hlið agans.