Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 51
„ É g e r m e ð k ó k ó m j ó l k s e m é g s t a l í b ú ð i n n i .“ TMM 2017 · 2 51 Nykur og komst í samhengi þar sem einhver gat lesið yfir fyrir mig. Ég gaf hana út sjálf í samstarfi við Nykur. Davíð Stefánsson var ritstjóri. Ég er ánægð með þessa bók, hún hefur svo skýrt konsept og er óður til Reykja- víkur. Þetta eru prósaljóð og örsögur, eitthvað þar á milli. Einhvers konar ljóðsögubók: Bjarg (2013). Ég þarf að hafa eitthvað til að vinna út frá, einhvern ramma og ramminn hér er áttahæða blokk með sex íbúðum á hverri hæð. Þetta er hópsaga og fjallað um margar persónur og ég reyni að segja sögurnar í sem fæstum orðum, yrki ljóð fyrir hverja íbúð og sótti líka í gamalt efni úr skissubók- unum og blandaði við ný skrif. Skrifin eru aldrei línuleg heldur blandast tímarnir saman. Það var kúnst að láta ljóðin tala saman, svo það sem gerist á annarri hæð heyrist á fyrstu og ég var skelfingu lostin á meðan bókin var í prentun um að eitthvað gengi ekki upp. Smásagnasafnið Svuntustrengur (2009). Hér birtast fyrstu sögurnar, frá árinu 1998 og sem ég skrifa á tíu ára tíma- bili og ólíkar svuntur tengja. Það eru ekki bara bakarar sem nota svuntur, líka blómasalar og fólk í frystihúsum. Svunturnar eru samt ekki aðalatriðið. Bókin hefði getað komið út átta árum fyrr en textinn á að vera tímalaus og geta komið út hvenær sem er; þannig vinn ég núna. Seinna skrifa ég kannski bók sem heimtar að koma út strax. Skáldsagan Jarðvist (2015) Sagan byggir á námuverkamönnunum í Chile sem lokuðust ofan í jörðinni árið 2010. Þetta er lýsing á tráma og hvernig ólíkar persónur bregðast við því á ólíkan hátt – mér þykir vænst um þessa bók því hún reyndi mest á mig. Nýlega áttaði ég mig á því að bókin kallast á við nýjustu bókina, Tungusól og nokkrir dagar í maí, hún er skrifuð á svipuðum tíma og ég hreinlega varð að halda niður í jörðina, niður í myrkrið. Þegar ég skrifaði hana fór ég oft í svitahof (e. sweat) þar sem maður situr í hita og myrkri í tjaldi og tekst á við innri drauga. Þegar bókin var komin út áttaði ég mig á tengingunni, svona er margt ómeðvitað í sköpunarferlinu. Já, að skrifa er e.t.v. ástand á milli svefns og vöku, þriðja raunstigið. Þetta er margrapersónusaga. Já, það var gaman að leika mér með þetta form sem m.a. Faulkner og Einar Kárason hafa notað og láta ólíkar persónur tala. Það var stór hluti af glímunni og býður upp á svo margt. Að fá persónurnar til að birtast í því sem þær segja og segja ekki og gera og gera ekki og hvernig aðrir spegla þær. Í raunverulegu atburðunum í Chile festust þrjátíu og þrír menn í námunni, ég hef þá níu og læt þá ganga lengra inn í skelfingu en gerðist í raun og veru og einskorðaði mig við dagana sautján þegar enginn vissi hvort þeir væru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.