Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 53
„ É g e r m e ð k ó k ó m j ó l k s e m é g s t a l í b ú ð i n n i .“
TMM 2017 · 2 53
***
Ertu hugrökk?
Ég vona það. Stundum, stundum ekki.
Hvar annars staðar viltu búa? Sveit, staður, borg?
Ég væri alveg til í að vera í sveit en nálægt sjónum. Mér líður vel nálægt
náttúru. Kannski endilega ekki á sveitabæ en sumarbústað einhvers staðar,
í litlu húsi.
Ertu kvöldsvæf, næturhrafn?
Frekar kvöldsvæf. Ég rotast klukkan tólf, eitt, vakna átta, níu. Það er mín
lukka í lífinu að fá góðan nætursvefn.
Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Nei, held ekki, það koma tímabil sem ég vil engar nýjungar, svo önnur
tímabil sem ég verð að fá nýjungar.
Hver er uppáhaldsmálsverðurinn þinn?
Ég elska að búa til gott salat, djúsí salat með góðum olíum, hnetum og
granateplum. Svo er ég rosa pastastelpa, búin að mynda pastaþol, get gúffað
í mig fullri skál. Gott pasta með miklum parmesan osti.
Áttu þér uppáhaldssögupersónu?
Ætli það sé ekki Lína og Bjartur í Sumarhúsum. Já og Grímur í Kaldaljósi.
Bækurnar hennar Vigdísar sitja í manni, þær eru hluti af kerfinu.
Já, það er þó satt. Áttu þér fyrirmynd?
Nei, ekki einhverja eina.
En margar?
Ég á góða vinkonu sem heitir Díana, hún hefur verið mér góð fyrirmynd
síðustu tíu árin. Hún er hugrökk hversdagshetja. Mér þykir líka lífsafstaða
Sigurðar Pálssonar skálds mjög heillandi og sýn hans á skáldskapinn.
Viltu útskýra lífsafstöðu hans og sýn?
Já, bara hvernig hann nálgast sköpunina af forvitni og næmi, með feg urð-
ina einhvern veginn í fingurgómunum.
Hvað óttast þú mest?
Kannski einsemd. Líka sjúkdóma.