Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 75
B e r s k j a l d a TMM 2017 · 2 75 2 Fólk var svo vitlaust í gamla daga. Fólk vissi ekki hvað einelti var og stelpur máttu ekki vera í smíðum og kallar kunnu ekki að elda og börn voru kannski farin að vinna í fiski 12 ára gömul. Nú er allt hins vegar orðið svo ógeðslega frábært. Allt byrjaði að vera ógeðslega frábært upp úr árinu 2000 þegar netið fór í alvörunni að veiða eitthvað af viti, eins og milfs í alvöru upplausn og þannig og síðan toppuðum við fyrir 10 árum þegar i-phoninn bjargaði okkur og tengdi okkur öll. Reyndar eru menn eitthvað að eyðileggja stemninguna með því að skera sig og drepa sig og svona. En frábærar framfarir í lyfjum eru þvílíkt frábærar og sem betur fer geta allir sem vilja verið á kvíða- og þunglyndislyfjum. Frábærar framfarir hafa líka orðið í orðaforðanum, við erum komin með ný orð eins og hrelliklám og hópnauðgun og cougar, lyfjanauðgun og slutshaming, walk of shame og cameltoe. Listinn yfir allt hið rosalega frábæra sem gerst hefur frá 2000 er rosalega langur. Nú til dæmis raka menn á sér píkuna. Og svo ef kona sé með rosalega ljóta píku þá eru til menn sem fara í háskóla í 15 ár til að læra að skera út píkur og opna brjóst og setja í þau sílikon. Ef ekki væri fyrir klámið sem fór að verða í rosalegum hd-gæðum hefðum við ekki hugmynd um öll þessi ljótu brjóst og píkur og rassa og hár sem fólk var með og ekkert hægt að gera. Í gamla daga var það víst þannig að meira að segja ljótt fólk stundaði kynlíf. Sem betur fer er það hætt. Reyndar hefur sumt ljótt fólk, eða ugly bitches eins og þær eru kallaðar verið að pósta myndum sem maður hefur óvart séð. Það ætti að vera bannað. 3 Einu sinni var skáld sem hét Jónas Þorbjarnarson. Bækur hans eru ekki til í bókabúðum, reyndar eru engar bókabúðir lengur á Akureyri. Ár hvert eru bækur hans keyrðar yfir heiðar á bókamarkað og aftur til baka. Það er engin brjóstmynd af honum við torgið. Ekki enn. Jónas samdi meðal annars þetta ljóð: BERSKJALDA Að annast sig sem lífveru er svipað umhirðu annarra véla: reglur gilda – notkunarreglur. En fyrst maður er mikið til hugur er voði alltaf vís því hver sem þykkt og styrkur höfuðbeina er –
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.