Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Side 77
B e r s k j a l d a TMM 2017 · 2 77 þegar í óefni er komið komast stóru málin á dagskrá, kærleikurinn, réttlætið, sorgin og samlíðanin. Maður er svo mikill vani. Hvernig á maður að snúa við blaðinu? Ef maður er alinn upp við stöðugt áreiti, hvernig nær maður púlsinum niður? Hvernig finnur maður ró til að sinna því sem maður veit innst inni að er dýrmætt og einhvers virði? Sýndarveruleikinn er víst það næsta sem okkur vantar. Það líður varla sá dagur að einhverjir lýsi ekki yfir hversu allt verður frá- bært með þessari nýju tækni. Og margt verður eflaust frábært en sýndar- veruleikinn verður bundinn afþreyingunni og við rígbundin við hana. Sýndarveruleikinn verður aðallega til að færa klámið á æðra plan og búa til sýndarnánd. Sjá, ég boða yður teledildonics. Það eru margir að rannsaka, margir í fræðunum að skrifa greinar í vef- tímarit og halda erindi. Allt virðist vera kraumandi í þessum málaflokki. Og kannski birtist það okkur þannig, okkur sem notum netið eins og skemmti- lega blöndu af alfræðiriti og borgarafundi. En hvað börnin og unglingana varðar er netið ekki þannig. Lýsa mætti net, skjá og snjallsímalífi barna og unglinga, og kannski flestra, sem eilífri verslunarmannahelgi. Um versl- unarmannahelgi fá börn og unglingar að vafra um í frumskógi án laga og reglna og án íhlutunar fullorðinna. Gerum tilraun um næstu verslunarmannahelgi. Förum á þjóðhátíð með stóra ferðatösku. Í töskuna skulum við setja eina Íslendingasögu, kannski Gísla sögu, stærðfræði 101, ömmu og afa, óhreint leirtau, hlýnun jarðar, snjalla grein um útlitsdýrkun og kannski einn til tvo innflytjendur, ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum, þýska málfræði og eina danska skáldsögu. Troðum líka nokkrum rithöfundum þarna ofaní, þeir taka ekki mikið pláss. Síðan förum við á milli tjalda og reynum að fá tjaldbúa til að skoða ofan í töskuna … (Ritstjórinn vill skiljanlega að ég haldi áfram með þessa töskusögu og endi greinina með einhverjum hætti. Hvað svo? Hefur ekki nóg verið skrifað? Eða er þetta kannski það innlegg í umræðuna sem allir hafa beðið eftir? Verður TMM kannski rifið út úr hillum pseudo-bókabúðanna íslensku?) Ert’ekki bara góður, ha? Ert’eitthvað blúsaður? Ha, áttu ekki grill? Eurovision framundan og svo Bíladagar á Akureyri. Burn Outið verður 17. júní ég er að elska lyktina af útblæstri á morgnana! Og blár reykurinn frá dekkjunum gerir mig svo, gerir mig eitthvað svo …
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.