Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 109
To l s t o j e ð a M a j a k o v s k i j TMM 2017 · 2 109 bregðast við henni, taka við henni fúslega eða með semingi ellegar hafna henni að nokkru eða öllu leyti. Af þeirri glímu eru margar og miklar og ólíkar sögur. En sjálf þessi átök náðu djúpt að hjartarótum hvers og eins vegna þess að öll höfðu skáldin, hvað sem síðar varð, reynt á sjálfum sér, bæði í von og ótta, þá hugljómun sem fylgir því að nú skal öllu því sem gamalt er, spillt og ranglátt á eld kastað og nú skal allt nýtt, réttlátt og hreint. William Wordsworth var ungt breskt skáld á dögum frönsku byltingarinnar. Hann varð fyrir vonbrigðum með hana eins og vonlegt var, en þegar hann horfir um öxl fimmtán árum eftir að hún hófst segir hann: Bliss was in that dawn to be alive but to be young was very heaven Í þeirri dögun var sælt að vera til en himnaríkið sjálf að vera ungur og eiga von á því að við „munum loks finna gæfuna hér og nú á þessari jörð eða alls ekki“, en þau eru lokaorð kvæðisins. Hugsa má í samanburði til jafn „ópólitísks“ skálds og Borisar Pasternaks sem ávarpar byltingu í eigin landi með þessum orðum á 25 ára afmæli hennar: Rétt sem þá, fyrir fjórðungi aldar við dagsbrún þegar allt varð líklegt varpar þú yfir mitt ævikvöld gullnum ljóma hins mikla upphafs. Það er svo sjálf hin volduga og lífseiga rússneska trú á mikilvægi bókmennta sem gerir þær fyrr og síðar að sjálfsögðu umræðuefni í tengslum við hvaðeina sem gerðist í samanlagðri sögu Sovétríkjanna. Hvort sem valdhafar notuðu þær til að renna fleiri stoðum undir vald sitt og stefnu eða skáldin fundu sér smugu til að koma að þeirri gagnrýni á samtíma sinn sem þau töldu brýnasta. Bókmenntir höfðu sitt að segja um hrifningu ungrar byltingar- kynslóðar af „hinu mikla upphafi“ sem Pasternak orti um. Þær kyntu undir bjartsýnni tæknihyggju sem fékk nýja kynslóð sovétborgara til að leggja sig fram í þeirri iðnvæðingu og framkvæmdakappi sem varð helsta áróðursvopn Stalíns og hans manna á fjórða áratugnum þegar Vesturlönd voru flest illa haldin af mikilli efnahagskreppu. Þær hjálpuðu til við að styrkja tengslin milli sovéskrar stórveldisstefnu og rússneskrar þjóðernishyggju. Eins og Alexej Tolstoj gerði, höfundur sem lagt hafði hvítliðum lið í borgarastyrjöld- inni eftir byltingu. Hann fór síðan í útlegð en sneri heim aftur og skrifaði sjálfan sig í sátt við byltinguna með sögulegri skáldsögu um Pétur mikla. Þar dregur hann fram beint og óbeint hliðstæður milli Stalíns og Péturs keisara: báðir beittu hörku og grimmd til að gjörbreyta því Rússlandi sem var og niðurstaðan er sú að aðeins með þeim hætti verði Rússlandi breytt og það gert að öflugu heimsveldi. Ferill sumra frægra höfunda í þessari sögu var einkennilegur. Maxím Gorkij var þegar um aldamótin 1900 frægur og vinsæll, ekki síst fyrir sögur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.