Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 113
„ E i n h e r j i s a n n l e i k a n s “ TMM 2017 · 2 113 Hver var hann þessi íslenski einherji sannleikans, eins og hann hefur verið kallaður? Um það vísa ég m.a. til ofangreindra heimilda í eftirfarandi samantekt minni. Magnús Eiríksson fæddist norður við Dumbshaf að Skinnalóni á Mel- rakka sléttu hinn 21. júní 1806. Faðir hans, Eiríkur Grímsson, drukknaði frá konu og 5 ungum börnum árið 1813. Elstur var Magnús, 7 ára, en yngstur langafi minn Jón á fyrsta ári. Á milli voru tvær systur, Hildur og Sigríður, og einn bróðir, Stefán. Ekkjunni, Þorbjörgu Stefánsdóttur Scheving, var ekki fisjað saman. Hún kom yngsta barninu í fóstur hjá góðu fólki, en hafði eldri börnin hjá sér. Hún réð sér ráðsmann og eignaðist með honum dóttur, en giftist fljótlega fyrrverandi vonbiðli sínum, stöndugum bónda, Birni Sigurðs- syni hreppstjóra að Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð. Þau eignuðust saman sjö börn en aðeins þrjú komust á legg, tvær dætur, Guðrún og Margrét og einn sonur, Stefán. Björn reyndist Magnúsi góður fósturfaðir og styrkti hann til náms í Bessastaðaskóla. Þaðan útskrifaðist Magnús með láði, efstur í sínum árgangi. Meðal skólafélaga voru m.a. frændi hans Jónas Hallgrímsson skáld og um tíma Jón Sigurðsson forseti og urðu þeir vinir og samherjar til ævi- loka. Næstu tvö árin var Magnús skrifari hjá Lorentz Krieger stiftamtmanni í Reykjavík. Um dvöl hans þar segir Jón Helgason svo frá: Varð hann þar fljótt hrókur alls fagnaðar sakir glaðværðar sinnar, lærði fiðluleik í nærkonuhúsinu hjá Lars Möller lögregluþjóni og lék fyrir dansi í klúbbhúsi bæjar- ins … En umfram allt söng hann öðrum fegur í kvöldboðum hjá gestrisnu fólki, því að rödd sem hans var næsta fágæt. (Jón Helgason, 1971, bls. 16) Krieger stiftamtmaður hreifst af hæfileikum Magnúsar og bauðst til að styrkja hann til náms í Kaupmannahöfn. Magnús sigldi utan 1831, las guð- fræði og útskrifaðist úr Hafnarháskóla 1837 með góðum vitnisburði. Honum buðust góð brauð sem prestur á Íslandi, en hugur hans stóð ekki til verald- legra gæða. Hann gerðist hjálparkennari (manuduktör) guðfræðinemenda háskólans og stundaði auk þess einkakennslu og bjó nemendur undir próf. Hann var mjög vinsæll meðal íslenskra stúdenta í Höfn og þeim mjög hjálp- samur. Séra Matthías Jochumsson segir svo í bókinni, Sögukaflar af sjálfum mér: „Hinir ungu og gjálífu landar hans kölluðu hann jafnan „frater“ (bróður) og það nafn sómdi honum vel, því að hann elskaði þá eins og bræður sína eða börn, og var heilagt ljós á þeirra villugjarna vegi“ (Matthías Jochums- son, 1959, bls 178). Auk þess stóð Magnús í bréfaskiptum við marga vini og vandamenn á Íslandi og mun hafa eytt miklum tíma í fyrirgreiðslu fyrir landa sína í Höfn, án þess að greiðsla kæmi fyrir. Um samskipti Magnúsar við landa sína í Kaupmannahöfn segir séra Eiríkur:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.