Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 127
TMM 2017 · 2 127 Úlfhildur Dagsdóttir Samsteypa sagna, segulbandsupp- tökur og stökk- breytingar Sjón: Ég er sofandi hurð. JPV útgáfa 2016 „En fyrst og fremst er það formsins vegna að ég festi niður stund og stað, svo þér sé ljóst hvar við erum stödd og hvenær, og til þess að gefa þessum upphafskafla þá vigt og stöðu sem hæfir því sem á eftir fer – það er að segja svo ekki fari á milli mála að saga mín kallist á við aðrar meiriháttar sagnarlistir og hið langa og síklingjandi nafnakall frá draumkvæðum á skinnbók til framtíðarkvikmynda, frá öfugmælavísum til guðspjalla, frá þjóð- sögum um móra bruggaðan af lyfjum til innhringds kjaftagangs í dagblöðum, frá ferðabókum gáfaðra kvenna til teikni- myndasagna um stökkbreytt börn […]“ (379–380) Þessi orð sögumannsins Jósefs Löwe fylgja í kjölfar yfirlýsingar hans um að hafi tiltekinn atburður „átt upphaf sitt í Reykjavík fyrsta dag aprílmánaðar árið nítjánhundruðsextíuogeitt þá gæti það allt eins hafa gerst hálfum mánuði fyrr“ (379). Við erum því stödd í margföldum blekkingarvef; 1. apríl er dagur gabbsins og því óáreiðanlegur í sjálfu sér, að auki er hann kannski ekki ‚rétt‘ dagsetning. Upphafskaflinn sem vísað er til er vissu- lega upphafskafli skáldsögunnar Ég er sofandi hurð eftir Sjón (Sigurjón Birgi Sigurðsson), en þó ber að hafa í huga að hún er þriðja verkið í þríleiknum CoDex 1962 og því er þessi ‚stund og staður‘ upphafsins, sem festur er niður ‚forms- ins vegna‘, dálítið á reiki. Allt er þetta svo í takt við sögumann- inn sjálfan, en í þessari lokabók þríleiks- ins afhjúpast hann lesendum loks og reynist hreint ekki sá sem hann hafði áður sagst vera. Skáldið Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðs- son) hefur í verkum sínum unnið mark- visst með form og formúlur og leikið sér að því að kollvarpa hefðum og ögra les- endum með því að segja sínar sögur á þann hátt sem þeir síst búast við. Í Stál- nótt (1987) fjallar hann um úthverfa- menningu ungmenna í formi framtíðar- vísindahrollvekju, draugasagan Engill, pípuhattur og jarðarber (1989) er ástar- saga um andóf og sögulegu skáldsög- urnar Skugga-Baldur (2003), Argóarflís- in (2005), Rökkurbýsnir (2008) og Mánasteinn (2013) eru vissulega stút- fullar af sögulegum viðburðum og svið- setningum, en alveg án þess að gefa færi á línulegu ferðalagi lesanda. Þríleikurinn CoDex 1962 er að sama skapi óvenjulegt verk, og í raun einstakt í íslenskri bókmenntasögu. Tilurð verksins spannar meira en tvo áratugi, en fyrsta bókin, Augu þín sáu mig, kom út árið 1994. Næsta bók, Með titrandi tár, birtist sjö árum síðar, 2001, og svo liðu heil fimmtán ár þar til sú þriðja, Ég er sofandi hurð, leit dagsins ljós. Og sú bók, eins og áður hefur verið sagt, hleypir hinum tveimur í uppnám, end- urskrifar söguna og umskapar sögu- manninn og aðalpersónuna. Fyrri bækurnar tvær einkenndust af samtali tveggja persóna, með áherslu á sögu sögumannsins í bland við inngrip U m s a g n i r u m b æ k u r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.