Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 16
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 16 TMM 2016 · 4 Varstu pabbastelpa? Mömmustelpa? Hvorugt? Hvort tveggja. En líklega meiri mömmu-. Og mikil ömmu- líka. Hafa foreldrar þínir haft áhrif á þig og bækurnar? Já, mikil áhrif og þess vegna á bækurnar, því neita ég ekki. Eftir unglings- árin og togstreituna sem þeim fylgdi vann ég meðvitað í því að eiga við þau gott og náið samband. Blóðtengsl eru viðkvæm sambönd, eins og sögurnar í harmleikjunum kenna okkur og ég held það sé ein af lífsins áskorunum að komast fyrir þessi tilfinningalegu og menningarlegu dauðagil – komast yfir brúna og til lands þar sem vex eitthvað annað en þreytt epli. Foreldrar mínir hafa gert sitt og ég hef gert mitt til að skapa vináttu. Ég skrifa held ég á grunni vináttu en líka út frá sárunum, æskusárunum, enda hef ég séð fyrir mér að skrifa á sárabindi sem er orðið eins og fljúgandi handrit. *** Varstu snemma læs? Manstu hver kenndi þér að lesa? Lastu mikið sem barn? Hver var uppáhaldsbókin þín þegar þú varst lítil? Ég man ekki hver kenndi mér að lesa en mig minnir að það hafi tekið mig dálítinn tíma og ég les frekar hægt. Ég var ekki lestrarhestur, frekar lesasni. Þegar við fórum til Frakklands var ég að verða læs og þegar ég yfirgaf skóla- stofuna í síðasta sinn stóð orðið fleur á töflunni. Eða stóð: Fleur de mal? Svo man ég eftir franskri ungbarnabók sem hafði mikil áhrif og ég veit nákvæm- lega hvernig lítur út en man ekki nafnið og finn hana ekki. Ég bjó vel að því að hafa Vilborgu Dagbjartsdóttur skáld á skólabóka- safninu í Austurbæjarskólanum og hún leiðbeindi mér í lestrinum. Ég man eftir að hafa lesið með ánægju bækur eftir Mariu Gripe, um Elvis og Húgo og Jósefínu, þekkirðu þær? Já, ég las þær. Jú og svo las ég allar Tinnabækurnar í sveitinni, milli verka, ég las þær svona þrjúhundruð sinnum. En ég er að gleyma mikilvægu atriði: pabbi las stundum upphátt fyrir okkur, meðal annars Njálu og mamma las Sálminn um blómið og hló svo mikið að ég hélt hún væri að tapa sér. Mér hefur alltaf þótt gott að hlusta á sögur og líka að hlusta á fólk segja sögur og sjálfri finnst mér mjög gaman að segja sögur – með því besta sem ég veit og fátt gefur mér jafn mikið og samtöl tveggja og fleiri þegar sagðar eru sögur og farið er vítt og hratt um völl, menn grípa fram í hver fyrir öðrum og inn fléttast útúrdúrar og enn fleiri sögur og brot. Samræða kvenna fer oft í skemmtilega hringi og spírala. Þessa hringrás hef ég reynt að höndla í rituðu máli en á langt í land. Ég hef haldið dagbók frá því ég var ellefu ára. Þó ég hafi ekki lesið dag- bækurnar að ráði man ég að þegar ég byrjaði að færa dagana til bókar stóð ég
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.