Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 30
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
30 TMM 2016 · 4
Og kannski mér.
Við ættum eiginlega að skrifa kvikmyndahandrit um þessi skrif okkar.
Við vorum held ég andsetnar af Muggi og mikið var að við fengjum ekki
berkla eins og hann. Manstu þegar við vorum beðnar um að sitja fyrir á
myndum hjá transylvanískri stúlku sem hafði handsaumað Sorry á flíkur
sem hún fann í dánarbúum? Og svo þegar við sátum þarna í Búdapest, þú
komin með pípuhatt og ég í jakka frá einmitt þeim tíma sem Muggur lifði,
þá fannst manni allt vera að gerast og Dimmalimm vera með í för.
Já, það voru svo falleg gólf í íbúðinni þar sem myndatakan fór fram og
birtan. Svo hefur þú komið að ritstjórn á bókum.
Jú, ég hef ritstýrt bókum eins og Pakkhúspostillunni og bók sem heitir
Veðrið vitnar um þig og Þjóðminjasafnskveri sem heitir Leiðin á milli – held
þær séu ekki fleiri. Núna er ég að ritstýra stórri bók með mömmu sem er um
lesturinn á landinu, við erum búnar að vera lengi að vinna hana, ég er mjög
spennt fyrir útkomunni, þetta er mikil tilraun hjá okkur.
Nú máttu endilega segja eitthvað áður en þessum umfjöllunarþætti lýkur.
Í framtíðinni mun ég geta sagt meira um þessar bækur, eins og ég get nú
sagt að Heim til míns hjarta var samþjöppun á fimm bókum. Nú er ég með
fimm bækur í smíðum, en ég hugsa þetta svona núna: í þessa bók fer þetta
og þetta aftur í þessa bók og hver bók verður um eitt atriði. Já, og nú er
best ég breyti um myndlíkingu og segi ekki lengur að bækurnar mínar séu
litlar handsprengjur – útaf öllum hryðjuverkunum – en hvað get ég kallað
verkin? Glasafrjóvgun? Eða kannski tæknifrjóvgun, þar sameinast tæknin
og andinn.
***
Tæknifrjóvgun – mjög fínt. Hvað gerir þig glaða?
Ég gleðst mjög oft og er held ég yfirleitt glöð. En líka sorgmædd. Er hægt
að svara spurningunni: hvað finnst þér gott í kynlífi? Það gleður mig líka
mjög mikið að finna bók sem ég veit að verður lífsförunautur minn.
En hvað gerir þig dapra?
Það er margt og fyrirsjáanlegra en það sem gerir mig glaða. Ég held að
skilningsleysi geri mig daprasta. Ég verð líka leið þegar ég hef gert mér vonir
um að eitthvað nýtt hafi glæðst og hugir hafi opnast en svo kemur algjör
stöðnun í ljós.
Af hvernig hljóðum hrífstu?
Af sumum bjölluhljómum og mörg hljóðfæri hljóma skemmtilega en ein-