Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 76
K r i s t j á n J ó h a n n J ó n s s o n 76 TMM 2016 · 4 Þau þurfa að gera upp við dauðann til þess að geta lifað lífinu og jafnframt að skilja og viðurkenna lífið til þess að geta sætt sig við dauðann. Hann er eftir allt saman hluti af lífi okkar allra, ekki bara endirinn á persónulegu lífi hvers um sig. Þessi skilningur gengur að mörgu leyti þvert á formúlu þroskasögunnar sem áður var á minnst. Lesandinn getur sjálfur rifjað upp þær meinlokur um dauðann sem stofnanir og gróðafyrirtæki hafa haldið að okkur nútíma- mönnum. Líf okkar er ekki einungis mótað ferli í þröngum ramma sem lýkur með dauðanum heldur er það sett saman úr mörgum sögum sem hefj- ast og lýkur ýmislega og sem við ráðum mismiklu um. Við getum verið stór þáttur í sögu annarra og þeir í okkar, bæði fyrir og eftir dauðann. Sögum í lífi okkar er stöðugt að ljúka og nýjar sögur að hefjast. Stöðugt deyr eitthvað í lífi okkar, bernskunni lýkur, bernskuheimilið hrynur eða er rifið, foreldrar og ástvinir bregðast og fólk deyr. En það kviknar líka stöðugt nýtt líf inni í lífi hvers manns, nýir möguleikar opnast, nýtt fólk verður til og nýjar tilfinningar blossa upp og verða að nýju lífi. Allt er breytingum háð. Skilningurinn á dauðanum sem endi alls sem er – er jafnframt sá skilningur að lífið sé óbreytanlegt – föst stærð og öryggi okkar grundvallað á því að ekkert breytist. Það er hæpið. Þá er ekki gert lítið úr sorg og missi en innra með okkur vitum við að ekkert í lífi okkar er óbreytanlegt. Þann sannleika nálgast Kristín Helga Gunnarsdóttir í sögu sinni Draugaslóð þegar hún lætur Eyvind og ömmu hans trúa því að þrátt fyrir allt sé afi kannski á einhvern hátt nálægur og missir hans hafi ef til vill ekki verið að öllu leyti missir heldur vegi þyngra ágóðinn af því að hafa kynnst vitrum og góðum manni. Það er ekki efi í mínum huga um að sterk fyrirbæri í mannlífinu eins og dauða og kynvitund eigum við ekki að fela eða breiða yfir. Við eigum að hugsa um þau, skrifa um þau og átta okkur á því hvernig við viljum skilja þau. Bókmenntakennsla er verulega mikilvæg leið til þess að opna umræður í skólastofunni um mikilvæg tilfinningamál. Til þess þarf hins vegar sterka kennaramenntun í bókmenntum og bókmenntafræði. Þar eigum við langt í land og það bætir ekki úr skák að nú klifa menn jafnan á því að allt sé hægt að gúggla og mæla. Það er ekki rétt. Við þurfum persónulegar og pólitískar samræður milli kynslóðanna þar sem tekinn er sá tími sem þarf í að átta sig á því hvar hið „sanna, góða og fagra“ í samtímanum leynist. Það getum við hvorki gúgglað né mælt. Ef rétt er á spilum haldið getur bókmenntakennsla orðið kveikja að mikilvægri gildisumræðu milli kynslóðanna og á því er ekki vanþörf. Heimildaskrá Clement, Lesley D. 2016. „Introduction. Flying Kites and Other Life-Death Matters“. Birt í: Global Perspectives on Death in Children’s Literature. 2016. Ed. Lesley D. Clement og Leyli Jamali. Taylor & Francis. New York. Dagný Kristjánsdóttir, 2010. Öldin öfgafulla, Bókmenntasaga tuttugustu aldarinnar. Bjartur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.