Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Page 121
„ A l l t a f h á l f o p n a r d y r“ TMM 2016 · 4 121 að samtímamönnum mínum. Sófókles er samtímamaður minn sem lesanda, Snorri Sturluson, Diderot, Baudelaire. Þannig að fáfengilegt kynslóðatal í sjálfhverfum fjölmiðlamönnum skiptir engu máli í samanburði við þennan stórkostlega sannleika: bókmenntatexti sem er sígildur er sígildur, ef ekki bara eilífur. Ég veit að ég ætti kannski ekki að spyrja um áhrif ákveðinna skálda eða rithöfunda á þín skrif og þína hugsun því ég geri mér grein fyrir að áhrif eru oft ómeðvituð. Eitthvað sem maður gerir sér kannski ekki alveg grein fyrir og verður ekki „resúmerað“ svo við höldum áfram að vinna með það orð. En ég get samt ekki setið á mér að spyrja, og þá óháð straumum eða stefnum. Ertu þér meðvitaður um einhverja áhrifavalda, eða ætti ég kannski frekar að nota orðið bakland? Já bakland hugnast mér betur. Andleg fjölskylda. Hún er fjölmenn. Tökum eitt dæmi af mörgum mögulegum: Octavio Paz, bæði ljóð og esseyjur, rit- gerðarsafnið hans L’autre voix (á frummálinu La otra voz, á ensku The Other Voice) er algjört meistaraverk um nútímaljóðlist. Annað ritgerðasafn hans ekki síðra, La flamme double (La llama doble) – um ást og erótík. Paz er einn af þeim sem ég hef lengi dáð, einn af stórfjölskyldunni sem maður velur sér. Mig minnir sterklega að Milan Kundera tali um það einhvers staðar að við veljum okkur ekki foreldra, systkini, fjölskyldu í raunveruleikanum, en það gerum við sem listamenn; við veljum okkur andlega fjölskyldu. (Nú finn ég ekki neins staðar þennan þanka hjá Kundera, hefur mig dreymt þetta eða hef ég sjálfur hugsað þetta …?) Nú, svo er það spurningin, hefur Paz haft áhrif á það sem ég skrifa? Það hef ég ekki hugmynd um. Ég sé það ekki í fljótu bragði, a.m.k. ekki aug- ljóslega. Hins vegar er Paz, svo og fleiri höfundar sem ég hef hrifist af á ákveðnum tímabilum, einhvers konar viðmið. Ég stilli þeim upp eða þeir stilla sér upp einhvers staðar í hugarlandslaginu. Þeir eru útverðir í því túni sem ég er að rækta, ég veit af þeim og hugsa til þeirra. Ég ætla mér ekki að fara inn á þeirra svæði, einmitt ekki, ég passa mig á því en þeir eru þarna allt um kring, í öllum áttum eins og varðmenn og þeir gæta mín. Þeir eru viðmið þess svæðis sem ég er að reyna að rækta. Ég get nefnt marga fleiri meðlimi minnar andlegu fjölskyldu, byrja á þeim sem hafa verið það mjög lengi, ég hef keypt og lesið allt sem þeir hafa gefið út jafnharðan. Kenneth White, ljóð og ritgerðir. Patrick Modiano, skáldsögur. Hef lengi haft bróðurtilfinningu gagnvart honum enda er hann fæddur 30. júlí, sama dag og ég, þremur árum áður. Philippe Sollers, ritgerðir og skáld- sögur. Bernard-Henri Lévy, ritgerðir, skáldsögur. Marc-Alain Ouaknin, ritgerðir. Chantal Thomas, ritgerðir, sögur. Julia Kristeva, ritgerðir aðallega, Jean Baudrillard, ritgerðir, Emmanuel Lévinas, ritgerðir. Paul Auster, skáld- sögur og ritgerðir, Haruki Murakami, skáldsögur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.