Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 83
— 81 —
1960
Akranes. Gerir alltaf talsvert vart
við sig í börnum.
Patreksfj. Algengt allt árið.
Flateyrar. Nokkur dreifð tilfelli á
árinu.
Hofsós. Fáein tilfelli i börnum eins
og áður. Athyglisvert tilfelli af stoma-
titis kom fyrir hjá konu 65 ára. Fékk
hún hita, 39 stig, beinverki, slen og
almenna vanlíðan. Hitinn stóð 10 daga,
lengst af 38 stig, þrátt fyrir antibio-
tica, en vanlíðan hennar var lengst
af meiri en ástæða var til eftir hit-
anum. í koki, tungu og gómum sáust
smágerðar, rauðleitar bólur, aumar
viðkomu og ollu sársauka við borð-
hald og hreyfingu á munninum. Eftir
veikindi þessi var konan slöpp og ónóg
sjálfri sér mánuðum saman, þar til
hún féklc vítamín-injectionir (B-comb.
°g ac. asc.), en þá var bati hennar
mjög athyglisverður.
21. Kikhósti (tussis convulsiva).
Töflur II, III og IV, 21.
1956 1957 1958
Sjúkl. 58 7 1
ttánir
1959 1960
3594 617
2
Eftirhreytur af fyrra árs faraldri
'yrstu mánuði ársins.
Puík. Kikhóstafaraldurinn frá árinu
'•ður fjaraði út á fyrstu þrem mánuð-
Uni ársins, og eftir það var tilkynnt
aoeins 1 tilfelli i maí.
Súðavikur. Kikhóstinn, sem gekk á
Sloast liðnu ári, var enn við líði fyrstu
^Uanuði ársins.
Húsavíkur. Slæðingur af vægum
v'khóstatilfellum, en gengið mjög hægt
Þórshafnar. Kikhósti barst i hérað-
j Um áramót með börnum, sem komu
^cim í jólaleyfi úr skólum utan héraðs.
ycjaði að ganga í janúar, en mjög
*gur, enda flest börn eldri en 1 árs
jo usett (triple-vaccin). Hefur komið
. ”art niður á börnum yngri en 1
r*’ sem ekki var búið að bólusetja.
c...or®llr-Egilsstaða. Nokkur væg til-
1 sem telja verður, að hafi komið
a nokkra bæi.
Hellu. Varð aðeins vart á öndverðu
ári.
Hafnarfj. Nokkur tilfelli, leifar af
fyrra árs faraldri. Var mjög vægur,
enda flestöll börn bólusett gegn hon-
um.
22. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 22.
1956 1957 1958 1959 1960
Sjúkl. 525 1254 1279 1092 1750
Dánir „ 1 „ „ 1
Viðloðandi allt árið. Á skrá i 42
héruðum.
Akranes. Gerir vart við sig flesta
mánuði ársins og er talsvert útbreidd-
ari en skýrslur sýna.
Flateyrar. Nokkur væg tilfelli.
Hvammstanga. Faraldur, er tók til
nokkurra bæja, gekk yfir i janúar,
aftur viðloða frá maí til ágúst og i
desember.
Grenivíkur. Barst hingað í febrúar,
gekk hér þá og í marzmánuði, var
frekar væg og án fylgikvilla, senni-
lega eitthvað fleiri tilfelli en skráð
eru.
Breiðumýrar. 3 tilfelli, systkin,
skráð 30. marz. Faðir þeirra kom til
min 7. marz með ristil.
Norður-Egilsstaða. Væg, viðloðandi
allt árið.
Kópavogs. Var viðloðandi allt árið
og allútbreidd í janúar, yfirleitt væg.
23. Heimakoma (erysipelas).
Töflur II, III og IV, 23.
1956 1957 1958 1959 1960
Sjúkl. 22 23 23 17 13
Dánir „ „ 1 „ 1
Á skrá í 7 héruðum.
24. Þrimlasótt
(erythema nodosum).
Töflur II, III og IV, 24.
1956 1957 1958 1959 1960
Sjúkl. 12 12,,
Dánir „ „ „ „ „
11