Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 148
1960
— 146 —
30. 21. maí. Sveinbarn, 9 daga gamalt.
Barnið hafði fæðzt 12. maí, og
viku seinna hafði móðirin farið
heim með barnið. Það hafði ver-
ið gult frá fæðingu, og ekkert
hafði borið sérstaklega á því,
nema hvað móðirin sagðist hafa
séð einhverja breytingu á
hörundslit þess, kvöldið áður en
það lézt, eins og að gulan væri
orðin bláleitari. Þegar gætt var að
barninu laust eftir miðnætti um
nóttina, var það látið. Ályktun:
Við krufningu fannst mjólkur-
drafli í barkakýli og barka, bland-
að saman við slím frá barkanum.
Virðist greinilegt, að barnið hafi
selt upp og magainnihald hrokk-
ið ofan í það og kæft það. Barnið
hefur verið veikburða, og báru
lungun þess merki, að það hafði
ekki gert neinar kröftugar önd-
unarhreyfingar. í tentorium cere-
belli og falx fundust gamlar blæð-
ingar, sem sennilega hafa stafað
frá fæðingunni. Sýnir þetta,
ásamt blæðingum á augnlokunum,
að barnið hefur haft hæmorrhag-
iska diathesis, sennilega vantað
K-vítamín frá fæðingu. Banamein-
ið hefur verið magainnihaldið,
sem hrokkið hefur ofan í lungu.
31. 23. maí. Karl, 39 ára. Maður þessi
hafði verið heilbrigður og ekki
vitað um neinn sjúkdóm hjá hon-
um fram undir andlát. Maðurinn
hafði komið heim að kvöldi 21.
maí, og kvartaði hann þá um verk
fyrir brjósti og háttaði. Heyrðist
yfir í næsta herbergi einhvers
konar sog i honum kl. 11.30, en
ekki var þó litið inn til hans fyrr
en kl. 2.30 eftir miðnætti, og var
hann þá látinn. Ályktun: Við
krufningu fannst útbreidd æða-
kölkun í kransæðum hjartans, sem
voru mjög þröngar á blettum.
Ferskur thrombus lokaði allstórri
grein af v. kransæð, en í bak-
vegg v. afturhólfs hjartans fund-
ust merki um ferska skemmd, sem
hefur orðið manninum að bana.
Ekkert áfengi fannst í blóðinu.
32. 24. maí. Karl, 8 ára. Drengur þessi
mun hafa rekizt á horn vöru-
bifreiðar, sem stóð á götu í Hafn-
arfirði, en síðan fallið undir eða
utan í strætisvagn, sem kom ak-
andi eftir götunni. Taiið var, að
drengurinn hafi látizt í sjúkra-
bifreið á leið til Slysavarðstof-
unnar. Ályktun: Við krufningu
fundust mikil brot á kúpubotni,
mikill bjúgur i heila og útbreidd-
ar punktblæðingar. Auk þess
fannst brot á II. rifi v. m., skammt
frá geislungamótum. Höfuðkúpu-
brotin ásamt blæðingunum i heila
og heilabjúg og losti munu hafa
orðið drengnum skjótlega að bana.
33. 25. maí. Karl, 49 ára. Hinn 24.
maí, kl. 12.30, var komið með
mann þennan í Slysavarðstofuna,
og var hann þá látinn. Hitinn
var þegar mældur í endaþarmi
hans og reyndist 30,4°C. Áfengis-
þefur fannst af vitum liksins. Upp-
lýst er, að maður þessi hafi um
nokkurn tíma haft verk fyrir
hjarta og hafi leitað til læknis út
af því. Daginn áður en hann lézt,
hafði hann komið heim kl. 22.30
og verið drukkinn og haft með
sér vínflösku. Kona hans hafði
tekið eftir því, að hann kastaði
mikið upp næstu nótt, en þau
sváfu ekki í sama herbergi. Um
kl. 0.15 um morguninn fór konan
inn til hans, og virtist honum liöa
sæmilega. Um 11.30 leytið kom
hún aftur til hans, og kvartaði
hann þá um kulda, en rétt á eftir
breyttist útlit hans, augun urðu
starandi, og hann virtist meðvit-
undarlaus. Var þá hring't í sjúkra-
bil og maðurinn fluttur í Slysa-
varðstofuna. Hann mun hafa verið
látinn, er þangað kom. Ályktun:
Við krufningu fundust þrengsli og
kölkun í upphafshluta v. krans-
æðar hjartans og ferskur throm-
bus, sem lokaði æðinni algjörlega.
Þessi thrombus hefur valdið
skyndilegum dauða mannsins.
Auk þess fannst bráð bólga i
maga, mjógirni og brisi, einrug
var mikil fita i lifrinni. í blóði
mannsins fannst \,\1% alkohól.
34. 31. maí. Karl, 43 ára. Maður þessi
fannst örendur á salerni á heimih