Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 112
1960
— 110 —
1, costae 1, fibulae 1, fibulae et tibiae
(ökkli) 1, claviculae 1.
Ólafsfj. Vulnera incisa 23, puncta 1,
dilacerata 4, distorsiones 12, combus-
tiones 2, contusiones 18 (þar af ein
telpa, 4 ára, sem fór með hönd milli
kefla í þvottavélarvindu, og dróst
handleggurinn milli keflanna upp að
öxl, marðist mikið, en reyndist ó-
skemmdur, þar sem gormaþvingur
voru á keflunum og gátu því gefið
nokkuð eftir). Fract. antebrachii 1,
dentis 1, digiti pedis 1, radii 1, costae
1, cartilaginis costae 1, vertebrae
lumbalis 1. (Rafvirki var uppi i stiga
að athug'a mælatöflu. Húsmóðirin
stóð við stigann rétt hjá og hafði
einnig auga á töflunni. Rafvirkinn
varð óstöðugur í stiganum og greip í
töfluna sér til styrktar, en hún reynd-
ist illa fest, og féll hann aftur fyrir
sig og á konuna ofan með þeim af-
leiðingum, að hún hlaut brot á lumbal-
lið, enda var maðurinn þungur).
Amputatio traumatica digitorum IV.
et V. manus dx., luxatio digiti 1,
corpus alienum corneae 1, capitis 1
(öngull). Sjómaður var í róðri einn ó
trillubáti og fórst, er óveður skall á.
Dalvíkur. Engin banaslys.
Akureyrar. 35 ára kona féll á gólfi
heima hjá sér og fékk brot á malleolus
medialis et lateralis dx. 2ja ára dreng-
ur hlaut brunasár á vinstra kálfa og
læri af heitu vatni úr hraðsuðukatli.
18 ára stúlka féll af hestbaki og hlaut
brot á báðum malleoli á hægra fæti.
71 árs kona féll í stiga heima hjá sér
og hlaut höfuðkúpubrot og auk þess
nokkra skurði á liöfuð. 11 ára dreng-
ur féll af reiðhjóli. Kom hann niður
á herðar og hlaut compression á IV.
og V. brjóstlið. 44 ára karlmaður skarst
á höfði í bílslysi. Mun hann hafa rekið
höfuð gegnum framrúðu bílsins. Hann
ók bifreiðinni sjálfur. 54 ára kona
féll niður af stóli heima hjá sér og
hlaut við það brot á condylus tibiae
dx. 46 ára karlmaður var við skól á
hestbaki, féll af hestinum og hlaut við
það heilahristing og nokkra skurði á
höfuð. 21 árs karlmaður var laminn í
höfuð með vínflösku. Hlaut hann
höfuðkúpubrot, auk nokkurra skurða
á höfði. 52 ára skipstjóri féll úr
brúnni niður í lest. Kom niður á skil-
rúmsborð með hægri öxl og hlaut lux.
humeri dx. og brot á tuberculum
majus. Auk þess brot á IV. rifi báðum
megin. 7 ára drengur féll, er hann var
að leik með félögum sinum, og hlaut
brot á framhandlegg. 14 ára drengur
féll á gólfi heima hjá sér og braut
hægra framhandlegg. 59 ára karlmað-
ur hlaut fract. columnae við bifreið-
arslys í Vaðlaheiði. 65 ára kona varð
fyrir reiðhjóli, féll á götuna og hlaut
fract. colli femoris. 52 ára kona datt
á rassinn á lóðinni heima hjá sér og
hlaut fract. columnae. 55 ára karlmað-
ur féll á svellbunka á götu, kom niður
á hnakkann og hlaut commotio cerebri.
75 ára kona féll á gólfi heima hjá
sér og hlaut fract. colli femoris sin.
Af slysum, sem ekki hafa þurft á
sjúkrahúsvist að halda, má nefna:
fract. CoResi 4, radii 14, humeri 3,
metacarpi 4, claviculae 4, metatarsi
3, tibiae 1, malleoli 1, ossis navicularis
1, digiti 2, luxatio patellae 1, artic.
metacarpi 2, acromioclavicularis 2,
ambustio 7, corpus alienum oculi 6,
annars staðar en í auga 15, distorsio
13, vulnera 248, stöðvuð blæðing eftir
tanndrátt 3 og stöðvun meira háttar
blóðnasa 2.
Grenivíkur. 17 ára stúlka meiddist
illa á hendi, er hún var að setja kerru
aftan i jeppa. Réð hún ekki við hana,
svo að handarbakið varð á milli kerru-
beizlisins og vegarins með þeim af-
leiðingum, að stór flipi flettist fram á
2x/i fingur, og skurð fékk hún á löngu-
töng radialt, og var sárið mjög óhreint.
10 ára telpa ætlaði að fara að svíða
lambslappir í smiðju. Missti hún eina,
sem var orðin vel heit, ofan á fót sinn
og brenndist fró hné fram á rist, fram-
an og innan á fæti. Auk framan taiins:
skurðir 12, sár 14, stungur 7, flísar 4,
korn i auga 1, tognanir 11, mar 10, mar
og tognanir 2, bruni 1. og 2. gr. 1 og
fract. radii 4.
Breiðumýrar. Slys voru fá og ekki
alvarleg, oft ótrúlega miklu minni
meiðsli á mönnum en til var stofnað.
Gálgi, sem verið var að draga steypu
á upp á efri hæð á húsi, brotn-
aði, og efri hluti hans kom á öxl og
í höfuð mannsins, sem stýrði hræri-