Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 146
1960
— 144 —
frá skipafélagi sínu um, aS hann
væri sviptur stöðu sinni. Um kl.
17.00 sama dag var hann staddur
á skrifstofu í Reykjavík, er hon-
um varð skyndilega illt. Hann bað
um að fá að komast á klósett, en
kastaði upp, áður en þangað kom,
og hneig niður og Iézt á örfáum
mínútum. Náð var í sjúkrabíl, sem
kom eftir fáeinar minútur og
flutti manninn upp á Slysavarð-
stofu, en hann var látinn, er þang-
að kom. Stýrimaðurinn á skipinu
upplýsti, að maður þessi hefði
verið lasburða undanfarið, og
hefði hann fengið gulu fyrir
nokkru síðan, en ekki vitað fyrir
hve löngu. Hann hafði sagzt hafa
stækkaða lifur og liðið oft illa
vegna þess. Á borði í káetu hans
fannst glas með 12 töflum af
pethidini, en 20 töflur höfðu ver-
ið þar upprunalega. Ályktun: Við
krufningu fannst mjög stækkað
hjarta, 670 g. Stækkunin hafði
stafað af því, að mjög mikil
þrengsli voru i aortaopinu, þar
sem meginæðin liggur út frá hjart-
anu. Hefur þetta gert hjartanu
mjög erfitt fyrir að dæla blóðinu
út í æðina. Þá fundust þrengsli
og lokanir á kransæðum hjartans,
og hefur þetta allt gert hjartanu
svo erfitt fyrir, að það hefur
skyndilega gefizt upp. Sennilega
hefur lungnabólgan, sem rnaður-
inn hefur verið nýbúinn að fá,
átt sinn þátt í þvi, að hjartað hef-
ur allt í einu gefizt upp.
23. ? Karl, 64 ára. Maður þessi
hafði fengið fjögur hjartaköst og
legið oftar en einu sinni á sjúkra-
húsi. Tveim dögum áður en hann
lézt, varð hann skyndilega veikur
og lagður í sjúkrahús. Læknirinn,
sem tók á móti honum í sjúkra-
Inisinu, sagði, að hann hefði spurt
sjúklinginn um, hvort hann hefði
fengið svona köst áður, og hann
hefði stunið upp, að þetta væri
fiinmta kastið, en að þvi búnu
dó maðurinn. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst hjartað nokkuð
stækkað og merki um afstaðna
kransæðastíflu í því. Ferskur blóð-
kökkur fannst i v. kransæð, þeirri
greininni, sem liggur i kringum
hjartað, en í hinni grein sömu
kransæðar fannst mjög mikil
kölkun og mikil þrengsli, og hef-
ur maðurinn fengið fyrri köst
vegna þrengslanna í þeirri grein.
Þessi blóðkökkur, sem myndazt
hefur skyndilega, hefur fljótlega
gert út af við manninn, vegna þess
hve hin greinin var léleg fyrir.
24. 19. april. Karl, 33 ára. Maður þessi
hafði verið háseti á togara og var
að fara í land úr togaranum, þeg-
ar hann kom til Reykjavíkur frá
Englandi. Síðan er ekkert vitað
um hann, fyrr en hann fannst lát-
inn á floti í höfninni snemma að
morgni 19. apríl. Vitað var þó,
að hann hafði sézt drukkinn kl.
4.00 um nóttina niðri við höfn.
Ályktun: Við krufningu og lík-
skoðun fundust greinileg einkenni
þess, að maðurinn hefði komið
lifandi í sjóinn og drukknað. I
blóði mannsins fannst l,35%e
alkohól.
25. 19. apríl. Karl, 41 árs. Maður þessi
fannst látinn í herbergi sínu að
morgni hins 18. apríl. Hann hafði
verið drukkinn samfellt í fimm
daga og átti vanda til að verða
mjög veikur og líða illa eftir slika
túra. Að morgni hins 17. hafði
hann hringt á stúlku, sem hann
þekkti, og beðið hana að koma til
sin. Hún hafði verið hjá honum
til kl. 12.30 um daginn og sagði
lögreglunni, að hann liefði beðið
hana um peninga, vegna þess að
hann hefði þá verið orðinn bæði
peningalaus og áfengislaus, en hún
hefði ekki haft neina peninga til
að Iijálpa honum um. Ekki er vit-
að síðan um manninn, fyrr en
kona, sem þar bjó í húsinu, heyrði
útvarpið alltaf í gangi og fór inn.
Sá hún þá, að maðurinn lá skot-
inn í rúmi sínu. Lá riffill ofan
á honum. Ályktun: Við líkskoðun
og krufningu fannst stórt skotsar,
sem hafði gengið inn í munninn
og í gegnum botninn á höfuðkup-
unni og farið í heilann neðan-
verðan, eftir honum endilöngum