Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 122
1960
— 120 —
illa, og ber að stefna að því, að það
tæki komi i liúsið. Hljóðbylgju- og
diathermitæki eru í pöntun og koma
sennilega eftir áramótin.
Suðureyrar. Læknisbústaður og
sjúkraskýli i smiðum, en hægt geng-
ur vegna ónógra fjárframlaga hins
opinbera, sem standa „númeriskt“ i
stað þrátt fyrir stórfellda dýrtíðar-
aukningu, og ekki hefur hið minnsta
tillit verið tekið til þess, að hér er um
algert landnám að ræða, 1). e. nýbygg-
ing Iæknishéraðs. Þrátt fyrir þetta
tókst forráðamönnum lireppsins, með
jiví að grípa til annarra sjóða, að koma
byggingunni það langt áleiðis, að
lækningastofa og apótek koinst í notk-
un um áramót.
Hvammstanga. Sjúkrahúsið, sem
hafði verið í smíðum frá því vorið
1957, var tekið í notkun 3. júlí. Það
er 353 m2 að flatarmáli, tvílyft. Á
fyrstu hæð eru 9 sjúkrastofur (auk
fæðingarstofu) fyrir 17 manns, þar af
eru 6 stofur með 10 rúmum ætlaðar
gömlu fólki sérstaklega sem hámarks-
legupláss. Öðrum sjúklingum eru ætl-
uð 6 rúm á hæðinni. Á fyrstu hæð er
einnig röntgenstofa, vaktstofa, skol, 4
salerni og 2 böð, auk símaklefa og
framköllunarkytru fyrir röntgenmynd-
ir. Skurðstofan í gamla sjúkraskýlinu
var endurnýjuð og er nú í beinum
tengslum við sjúkragang nýja sjúkra-
hússins. Á annarri hæð er stofa fyrir
4 sjúklinga, sem hafa fótavist, einnig
stór salur, sem enn er óráðstafað, en
gæti rúmað 10 manns, ef á þyrfti að
halda. Þarna er rúmgóð setustofa og
3 tveggja herbergja íbúðir fyrir hjúkr-
unarkonur og ráðskonu. Eldhús og
borðstofa eru á fyrstu hæð. í kjallara
eru geymslur, þvottahús og þurrkhús,
einnig miðstöðvarklefi og disilrafstöð.
Likhús er áfast við bygginguna. End-
urskoðun byggingarreikninga er ekki
lokið, en láta mun nærri, að kostnaður
sé um 4,3 milljónir króna. Gamla
sjúkraskýlinu var breytt í lækninga-
stofur og lyfsölu, og hafa vinnuskil-
yrði læknis stórbatnað við flutninginn
úr þröngum húsakynnum ibúðarinnar,
en þar var 1 stofa fyrir lækningar og
lyf og engin biðstofa önnur en mjór
gangur.
IUönduós. Keypt stuttbylgjutæki og
hljóðbylgjutæki, en auk þess nokkuð
af handverkfærum og ýmsum tækjum.
í undirbúningi er að líma hljóðein-
angrunarplötur í loft á göngum og
stigahúsum, en óþægilega hljóðbært
er í húsinu. Verið er að endurnýja
ljósavél, sem höfð er til öryggis, en
vélin skemmdist sökum vanhirðu.
Höfða. Enginn læknisbústaður, og
ekki útlit fyrir, að ráðamenn héraðs-
ins hafi hug á að byggja nýjan læknis-
bústað. Tel ég vafasamt, að þeir fái
nokkurn lækni til að setjast hér að
við þær aðstæður, sem ég hef haft við
að búa.
Iíofsós. Á þessu ári var keypt sjálf-
virk olíukynding til læknisbústaðar-
ins, hið mesta þarfaþing. Má nú bú-
staðurinn teljast i góðu ásigkomulagi.
Þó hefur mér alltaf fundizt það galli
á þessum bústað og raunar fleiri
læknisbústöðum, hve náin tengsl eru
á milli íbúðar annars vegar og lækn-
ingastofu og lyfjastofu hins vegar. í
fyrsta lagi skapar slikt skipulag ónæði
í íbúðinni, en það mun farsælast fyr-
ir báða aðila, að heimilisfólk lækna
hafi sem minnst af sjúklingum þeirra
að segja. í öðru lagi er það ekki
hættulaust, þar sem börn eru á heimili,
að greiður gangur sé úr íbúð i lyfja-
geymslu.
Seyðisfj. Sjúkrahús Seyðisfjarðar
verður 60 ára gamalt 1. janúar 1961
og ber merki þess þrátt fyrir marg-
víslegar endurbætur, sem gerðar hafa
verið á húsinu. Röntgentækið er lélegt
og aðstaða til myndatöku og framköll-
unar sömuleiðis. Ég tel, að ekki eigi
að gera neinar meira háttar og kostn-
aðarsamar endurbætur á húsinu, held-
ur stefna að þvi að nýtt sjúkrahús
verði byggt.
B. Sjúkrahjúkrun. Hellsuvernd.
Sjúkrasamlög.
Heilsuverndarstöðvar.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
I. Berklavarnadeild.
Sjá töflu á bls. 121.